Lóð fyrir 65 íbúðir við Nauthólsveg
Reykjavíkurborg leitar eftir kauptilboðum í byggingarrétt fyrir íbúðarhúsnæði á lóðinni Nauthólsvegur 79.
Vefsíða uppfærð 30. júlí 2023: Kauptilboð hafa verið opnuð og má sjá niðurstöðu neðst hér á síðunni.
![Lóð til sölu á Nauthólsvegi 79.](/sites/default/files/styles/original_4k/public/2023-06/nautholsvegur%2079.jpg?itok=OIo0xTt9)
Byggingarréttur til sölu
Á lóðinni Nauthólsvegur 79 er heimilt að byggja allt að 65 íbúðir, í 3-5 hæða íbúðarhúsnæði í randbyggð, auk tveggja stakstæðra húsa 2-3 hæða, allt að 5.320 m² ofanjarðar og 2.365 m² neðanjarðar. Gert er ráð fyrir atvinnu- og/eða þjónustuhúsnæði á jarðhæð meðfram hluta Nauthólsvegar og Flugvallarvegar. Bílastæði verða ofanjarðar og í bílageymslum neðanjarðar. Aðeins lögaðilar geta boðið í byggingarréttinn.
Félagsbústaðir hf., kt. 510497-2799, eiga kauprétt á 6 íbúðum í húsum á lóðinni. Kaupverð hvers birts fermetra á íbúð og geymslu er 490.000 kr., bundið byggingarvísitölu.
Útboðsgögn
Útboðsgögn eru aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Undirrituðum tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en kl. 12:00 fimmtudaginn 29. júní 2023.
Gæta skal þess að tilboð lögaðila séu staðfest af þeim sem hefur/hafa heimild til að skuldbinda félagið.
Niðurstaða útboðs er birt á útboðsvef Reykjavíkurborgar.
Niðurstaða útboðs
Reir ehf |
kr. |
419.000.000 |
---|---|---|
ÞG Asparskógar ehf. |
kr. |
665.000.000 |
Skientia ehf. |
kr. |
751.000.000 |
Svörtu Hamrar ehf. |
kr. |
217.000.103 |
B28 Fasteignir ehf. |
kr. |
315.120.000 |