50 ára trébátur sem þarfnast viðgerðar
Reykjavíkurborg fékk teinæringinn Örninn að gjöf árið 1974 og hefur hann meðal annars þjónað sem skemmtibátur við Reykjavík og hjá siglingaklúbbum.
Báturinn er í slæmu ástandi, hann er ekki sjófær og þarfnast mikillar viðgerðar. Reykjavíkurborg hyggst bjóða áhugasömum um viðgerð og verndun trébáta að lýsa áhuga sínum á því að fá til eignar teinæringinn Örninn.
Áhugasamir geta sent tölvupóst á netfangið borgarsogusafn@reykjavik.is, fyrir 20. júní 2023, með eftirfarandi upplýsingum:
- Tengiliður / nafn:
- Símanúmer:
Nánari útlistun á hugmyndum varðandi framtíð Arnarins:
- Hvað á að gera við bátinn?
- Ef gera á bátinn upp er það gert í menningarlegum tilgangi?
- Hvar er áætlað að staðsetja bátinn til framtíðar?
- Er þetta samstarfsverkefni? Ef svo er hverjir koma að verkefninu?
Vinsamlega staðfestið að afhending bátarins verði án allra kvaða af hendi Reykjavíkurborgar.