50 ára trébátur sem þarfnast viðgerðar

Teinæringurinn Örn
Teinæringurinn Örn.

Reykjavíkurborg fékk teinæringinn Örninn að gjöf árið 1974 og hefur hann meðal annars þjónað sem skemmtibátur við Reykjavík og hjá siglingaklúbbum.

Báturinn er í slæmu ástandi, hann er ekki sjófær og þarfnast mikillar viðgerðar. Reykjavíkurborg hyggst bjóða áhugasömum um viðgerð og verndun trébáta að lýsa áhuga sínum á því að fá til eignar teinæringinn Örninn.

Áhugasamir geta sent tölvupóst á netfangið borgarsogusafn@reykjavik.is, fyrir 20. júní 2023, með eftirfarandi upplýsingum:

  • Tengiliður / nafn:
  • Símanúmer:

Nánari útlistun á hugmyndum varðandi framtíð Arnarins:

  1. Hvað á að gera við bátinn?
  2. Ef gera á bátinn upp er það gert í menningarlegum tilgangi?
  3. Hvar er áætlað að staðsetja bátinn til framtíðar?
  4. Er þetta samstarfsverkefni? Ef svo er hverjir koma að verkefninu?

Vinsamlega staðfestið að afhending bátarins verði án allra kvaða af hendi Reykjavíkurborgar.