Ungmenni funda með borgarstjórn

ungmennaráð á svölum ráðhússins.

Þriðjudaginn 8. febrúar klukkan 16:00 funda fulltrúar úr Reykjavíkurráði ungmenna með borgarstjórn í borgarstjórnarsal Ráðhússins. Til umfjöllunar eru tillögur frá ungmennum í Reykjavík um málefni sem á þeim brenna og þeim finnst að betur megi fara í borginni. Streymt verður frá fundinum á vefslóðinni http://reykjavik.is/fundirborgarstjornar/borgarstjorn-i-beinni.

Ungmenni funda með borgarstjórn

Að þessu sinni liggja átta tillögur fyrir fundinum. Þær snúa að kynjalausu skólaumhverfi, auknu úrvali fyrir grænkera og grænmetisætur í skólamötuneytum, bættu aðgengi að getnaðarvörnum, aukinni kynfræðslu, breytingum á einkunnagjöf í íþróttum, bættum strætósamgöngum á Kjalarnesi, gjaldtöku fyrir börn í sundlaugum Reykjavíkur, betra aðgengi fyrir börn að sálfræðiþjónustu og að staðið verði fyrir hinsegin fræðslu fyrir foreldra í borginni. Meðfylgjandi er yfirlit yfir tillögurnar sem lagðar verða fyrir borgarstjórn á fundinum 8. febrúar.

Fulltrúar í Reykjavíkurráði ungmenna hafa haft í nógu að snúast en ráðið hittist á vikulegum fundum yfir vetrartímann. Ráðið á fulltrúa í skóla- og frístundaráði og stjórn barnamenningarhátíðar og hefur fylgt tillögum frá borgarstjórnarfundum eftir inn í fagráð og nefndir. Haldinn er árlegur samráðsfundur með fulltrúum frá Strætó bs. til að ræða það sem betur má fara í strætósamgöngum í borginni, unnin var umsögn um menningarstefnu borgarinnar og fundað með fulltrúa frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til að ræða innihald og framsetningu forvarnarmyndbands gegn kynsjúkdómum. Ráðið skipulagði einnig starfsdag fyrir fulltrúa allra ungmennaráða í Reykjavík og tók þátt í samstarfi við fulltrúa ungmennaráða á hinum Norðurlöndunum.

Reykjavíkurráð ungmenna er samráðsvettvangur allra ungmennaráðanna sex sem starfa í hverfum Reykjavíkur en hvert ungmennaráð tilnefnir sína fulltrúa í Reykjavíkurráðið. Markmið með starfsemi Reykjavíkurráðs ungmenna og ungmennaráðanna í Reykjavík er meðal annars að skapa vettvang og leiðir til þess að gera þeim sem eru yngri en 18 ára kleift að koma skoðunum sínum og tillögum á framfæri og þjálfast í lýðræðislegum vinnubrögðum.

Reykjavíkurborg var eitt fyrsta sveitarfélagið á landinu til að stofna ungmennaráð og nú er fundur Reykjavíkurráðs ungmenna og borgarstjórnar orðinn að árvissum viðburði. Fundurinn nú er sá tuttugasti og fyrsti í röðinni. Þær tillögur sem ungmennaráðin hafa lagt fram hafa margar hverjar komist til framkvæmda til góðs fyrirbörn og ungmenni í borginni. Þær hafa einnig leitt til aukins samstarfs við ungmenni innan borgarkerfisins og lýðræðislegra starfshátta í starfi með börnum og ungmennum.

Sjá tillögur ungmennaráðanna sem lagðar verða fram á morgun.