Umsagnir óskast frá íbúum um þjónustustefnu Reykjavíkurborgar

Höfðatorg. Ljósmynd Ragnar Th. Sigurðsson

Reykjavíkurborg óskar eftir umsögnum frá íbúum um drög að þjónustustefnu Reykjavíkurborgar.

Endurskoðun á stefnunni hefur staðið yfir síðan í nóvember á síðasta ári, en drög að endurskoðaðri stefnu og drög að nýrri aðgerðaáætlun voru kynnt á fundi Mannréttinda-, nýsköpunar og lýðræðisráði þann 9. desember sl.

Þjónustustefnan lýsir samræmdri sýn borgarinnar á það hvað þjónustuveiting snýst um. Í stefnunni er lögð áhersla á að veita borgarbúum aðgengilega, fjölbreytta og framúrskarandi þjónustu.

Nú stendur íbúum til boða að senda inn umsagnir um drögin. Hægt er að senda inn umsagnir í gegnum vefinn Betri Reykjavík: https://www.betrireykjavik.is/community/4079

Einnig er hægt að senda umsögn beint á netfangið thjonustustefna@reykjavik.is. Tekið er á móti umsögnum til og með 10. mars 2022.

Hægt er að nálgast upplýsingar um þjónustustefnuna ásamt drögum að endurskoðaðri stefnu og drög að aðgerðaáætlun á vef borgarinnar: https://reykjavik.is/thjonustustefna

Þar eru drögin aðgengileg á íslensku, ensku og pólsku.