Skimað fyrir einstaklingum í ótryggum aðstæðum þegar mikill kuldi er í kortunum

Fólk gengur yfir ísi lagða Tjörnina í Reykjavík.

Þegar mikill kuldi er í veðurkortunum leggur Vettvangs- og ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar (VoR-teymið) sérstaka áherslu á að skima fyrir einstaklingum í ótryggum aðstæðum í borginni og kanna stöðuna hjá þeim hópi sem það veitir þjónustu.

VoR-teymið upplýsir fólk um þær bjargir sem til staðar eru, það er hvatt til að koma í neyðarskýli þegar þau opna og nýta önnur úrræði, á borð við Kaffistofu Samhjálpar, Hjálpræðisherinn, dagsetrið Skjólið eða tengjast miðstöð í sínu hverfi. Það er hlutverk VoR-teymisins að aðstoða fólk sem er heimilislaust, með margháttaðan vanda. Teymið veitir einstaklingsmiðaða ráðgjöf og stuðning í húsnæði og á vettvangi. 

Neyðarskýlið á Lindargötu opið veikum einstaklingum

Veikir einstaklingar hafa alltaf aðgang að neyðarskýlinu á Lindargötu og aðrir geta komist þar í kaffi og farið á salerni. Ef upp koma atvik í neyðarskýlum sem verða til að vísa þarf gest úr húsi er þess gætt að lögregla sé látin vita.

Þegar um appelsínugular eða rauðar veðurviðvaranir er um að ræða er neyðaráætlun málflokks heimlislausra virkjuð með það markmið að meta þörf á dagopnun neyðarskýla og tryggja upplýsingaflæði milli samstarfsaðila og til notenda.

Þrjú neyðarskýli í Reykjavík

Neyðarskýlin í Reykjavík eru þrjú. Tvö eru fyrir karlmenn, í Grandagarði og á Lindargötu. Í Grandagarði eru 15 gistipláss og á Lindargötu 25 pláss. Þá rekur Rótin neyðarskýli fyrir konur, Konukot, með þjónustusamningi við Reykjavíkurborg. Þar eru 12 pláss. Öll eru skýlin opin milli klukkan 5 á daginn og 10 á morgnana. Á meðan skýlin eru lokuð standa yfir þrif og undirbúningur fyrir kvöldið og nóttina framundan.