Samráð um hverfisskipulag í Laugardalnum og nágrenni
Nú er að fara af stað samráðsferli um gerð hverfisskipulags fyrir Laugarneshverfi, Langholtshverfi og Vogahverfi. Starfsfólk hverfisskipulags Reykjavíkur hefur undanfarnar vikur undirbúið samráðið með grunnskólanemendum sem eru fullir af skapandi hugmyndum um hvernig hverfið gæti verið. Í þessari viku var röðin komin að 6. bekkingum í Laugarnesskóla og 7. bekkingum í Laugalækjarskóla að búa til módel af hverfunum sínum, eins og nemendur 6. bekkja Vogaskóla og Langholtsskóla gerðu í liðinni viku.
Módelin eru hluti af skapandi samráði vegna undirbúnings hverfisskipulags fyrir Laugardal; borgarhluta 4. Borgarhlutinn nær alveg frá Túnum í vestri til hinnar nýju Vogabyggaðar í austri og frá Laugarnesi í norðri til Suðurlandsbrautar í suðri og alveg að Miklubraut austan við Grensásveg og upp að Elliðaám. Í næstu viku verður svo sýning á módelunum fyrir nemendur skólanna fjögurra og fjölskyldur þeirra undir stúkunni á Laugardalsvelli. Þar verður einnig opið hús í næstu viku fyrir íbúa hverfanna í Laugardal.
Forkönnun – taktu þátt
Forkönnun á Netinu um almenningsrými og ferðaleiðir í hverfunum í Laugardal stendur nú yfir og lýkur á morgun 25. mars. Þessar kannanir eru mikilvægur liður í samráði við íbúa um gerð hverfisskipulags. Í þessari netkönnunin er spurt um hvaða almenningsrými íbúar nota í frítíma sínum og hvernig þeir ferðast á milli innan borgarhlutans, t.d. fótgangandi, hjólandi eða með öðrum virkum ferðamáta. Hverfisskipulagið hvetur íbúa til að taka þátt og svara nokkrum spurningum. Þannig fæst skýrari mynd af borgarhlutanum og hverfinu í heild.
Ævar Harðarson deildarstjóri skrifaði grein um samráðið sem má lesa hér: Nú er komið að ykkur.
Nánar má lesa um samráðið og hverfiskipulagsvinnuna hér.