Opinn fundur um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu
Forsætisráðherra, innviðaráðherra og borgarstjóri eru meðal frummælenda á opnum fundi um samgöngumál sem haldinn verður í Ráðhúsi Reykjavíkur, föstudaginn 4. mars.
Léttum á umferðinni 2022
Yfirskrift fundarins er Léttum á umferðinni 2022. Á fundinum munu Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri í Kópavogi taka til máls meðal annarra sem fara yfir stærstu verkefnin sem áætluð eru í samgöngumálum höfuðborgarsvæðisins.
Fundurinn hefst með því að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Dagur B. Eggertsson tilkynna um úrslit í hugmyndasamkeppni um endurgerð Lækjartorgs. Þar á eftir mun sigurtillagan verða kynnt en um að er að ræða gagngera breytingu á torginu.
Farið verður yfir stöðuna á Borgarlínuverkefninu og tækifærin sem skapast til uppbyggingar meðfram línunni. Fulltrúar háskólanna í Reykjavík, forsvarsmenn stærstu fasteignafélaganna á höfuðborgarsvæðinu auk Ármanns Kr. Ólafssonar bæjarstjóra í Kópavogi munu fara yfir möguleikana sem Borgarlínan skapar til þéttingar og uppbyggingar.
Kynning verður á Öldu – brúnni sem tengir Reykjavík og Kársnes í Kópavogi með Borgarlínunni sem skapar mikil tækifæri fyrir þá sem búa báðum megin Fossvogs.
Kynnt verða uppbyggingaráform í kringum umferðarstokkana sem byggðir verða á Sæbraut og Miklubraut.
Að lokum mun Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra fara yfir stöðu Sundabrautarverkefnisins og næstu skref varðandi Sundabraut.
Pawel Bartoszek formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar stýrir fundinum og dregur saman helstu atriði úr erindum frummælenda í lokin.
Fundurinn hefst kl. 9 en húsið opnar kl. 8.30. Dagskrá og beint streymi á vef Reykjavíkurborgar.
Öll velkomin.