Opinn fundur Reykjavíkurborgar þar sem farið verður yfir græn fjárfestingarverkefni sem miða að því að skapa vistvænni framtíð í borginni. Fundurinn er í Ráðhúsi Reykjavíkur, föstudaginn 11. febrúar kl. 9 – 11.
Fjölmargir áhugaverðir fyrirlesarar fjalla um þau krefjandi verkefni sem Reykjavík stendur frammi fyrir til að tryggja græna framtíð og kolefnishlutleysi.
Kraftmikill grænn vöxtur
• Hvaða skref erum við að stíga í átt að kolefnishlutlausri borg?
• Hvernig stuðlar kraftmikill grænn vöxtur að samkeppnishæfni og frjósömu umhverfi fyrir skapandi hugmyndir?
• Hvernig tryggjum við að græna umbreytingin byggi á réttlæti, sanngirni og þátttöku íbúa og fyrirtækja?
Græna plan Reykjavíkurborgar dregur saman helstu lykilverkefni og grænar fjárfestingar áratugarins. Þessi framtíðarsýn lýsir borgarsamfélagi sem einkennist af heilnæmu umhverfi, jöfnum tækifærum og öflugu atvinnulífi sem dafnar án þess að ganga á náttúruauðlindir.
Öll velkomin í Ráðhúsið föstudaginn 11. febrúar kl. 9 – 11. Fundurinn er einnig í beinu streymi á https://reykjavik.is/graena-planid-fundur
Dagskrá
• Græna planið - fjárfesting Reykjavíkurborgar og tengdra fyrirtækja í grænni framtíð
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
• Nýsköpum grænni framtíð
Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups
• Hvernig borg verður Reykjavík árið 2035?
Björgvin Ingi Ólafsson, meðeigandi hjá Deloitte
• Hringrásargarður á Álfsnesi – samstarf og fjárfestingartækifæri tengt Hringrásarhagkerfinu
Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdarstjóri Sorpu
• Undirritun samnings um grænan viðskiptahraðal og þátttöku borgarinnar í frumkvöðlakeppninni Gullegginu.
Dagur B. Eggertsson og Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups.
• Að sýna ábyrgð – Sjálfbær þróun lífeyrissjóða
Ólafur Sigurðsson, framkvæmdarstjóri Birtu lífeyrissjóðs
• Grænir sprotar á Tæknisetri
Guðbjörg Hrönn Óskarsdóttir, framkvæmdarstjóri Tækniseturs
• Fjárfestingar einkaaðila í grænum lausnum
Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa
• Líf Magneudóttir, formaður umhverfis- og heilbrigðisráðs dregur saman umræður fundarins
• Fundarstjóri: Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs