Öll saman í haustfríi

Skóli og frístund

Fjölskyldan saman í haustfríi - ljósmynd Ragnar Th. Sigurðsson.

Það er haustfrí í grunnskólum Reykjavíkurborgar dagana 21. - 25. október. Að því tilefni verða ýmsir viðburðir fyrir alla fjölskylduna um og eftir helgi.

Fjölskyldur eru hvattar til samveru í haustfríi og foreldrum/forráðamönnum er boðin ókeypis frístund og menningu séu þau í fylgd barna.

Skapandi smiðjur og samvera verður í öllum Borgarbókasöfnum.  Það verður skipulögð dagskrá og frítt inn á sýningar safna borgarinnar og fjölbreytt frístundastarf í hverfum.

Dagskrá í haustfríi grunnskóla Reykjavíkur