Ný rannsókn rennir stoðum undir gagnsemi PMTO fyrir börn og foreldra
Nýleg rannsókn sýnir að aðferð sem sniðin er að þörfum foreldra barna sem eiga við mikinn hegðunarvanda að stríða skilar góðum árangri. Aðferðin kallast PMTO (Parent Management Training – Oregon) en úrræði sem byggja á henni voru innleidd formlega hjá Reykjavíkurborg árið 2015 og hafa síðan staðið fjölskyldum í borginni til boða. Alls hafa 2495 foreldrar notið PMTO-þjónustu á vegum velferðarsviðs.
Höfundar rannsóknarinnar eru þau Anna Dúna Halldórsdóttir, Vignir Þorsteinsson, Margrét Sigmarsdóttir og Urður Njarðvík. Markmið þeirra var meðal annars að kanna hvort aðferðin sem kallast Parent Management Training – Oregon (PMTO) bæri tilætlaðan árangur við að draga úr hegðunarvanda barna og efla foreldrafærni hjá afmörkuðum hópi við íslenskar aðstæður. Aðferðin hefur reynst árangursrík, bæði hér á landi og erlendis, við að draga úr hegðunarvanda barna og auka foreldrafærni en helsta markmið hennar er að rjúfa óhjálpleg og óæskileg samskiptamynstur milli barns og foreldris. Það er gert með miðlun jákvæðra uppeldisaðferða, til dæmis kerfisbundinni hvatningu, markvissu eftirliti, að setja mörk, lausnaleit, jákvæðri samveru og afskiptum og ýmsum öðrum styðjandi leiðum.
Skilvirk leið til að minnka hegðunarvanda
Alls tóku 24 börn á aldrinum 4–15 ára þátt í rannsókninni ásamt fjölskyldum sínum. Þau fengu einstaklingsmiðað PMTO sem fór fram á vettvangi fjölskyldna. Auk þess fengu þau þétt utanumhald, meðal annars í formi fleiri viðtala í viku og símtala á milli meðferðartíma til aðstoðar við vandamálalausn og aðstoð til foreldra að koma upp jákvæðu sambandi við skóla, barnaverndarnefnd og maka.
Niðurstöðurnar gáfu til kynna að PMTO var skilvirkt í að minnka hegðunarvanda barna og auka foreldrafærni, en þær breytingar voru frá því að vera miðlungs til miklar. Auk þess hélst minnkun á hegðunarvanda að við aukningu á foreldrafærni. Niðurstöður styðja því við skilvirkni PMTO sem leið til þess bæði að minnka hegðunarvanda barna sem og auka foreldrafærni.
Niðurstöðurnar þykja mikilvægar, ekki síst í ljósi þess að hegðunarvandi hafi tengsl við bæði kvíða- og þunglyndisraskanir barna. Þá geti hann einnig haft tengsl við vanda fullorðinsárum, til dæmis sjálfsvígshegðun og vímuefnaneyslu. Ávinningur minni hegðunarvanda getur því verið mikill fyrir líf og líðan þeirra barna sem hljóta meðferð og fjölskyldur þeirra.
Mikilvægt að úrræði sem bjóðast séu studd rannsóknum
Arndís Þorsteinsdóttir, sálfræðingur og starfsmaður Keðjunnar, starfseiningar innan velferðarsviðs sem heldur utan um stuðningsþjónustu við börn og fjölskyldur, segir afar mikilvægt að Reykjavíkurborg bjóði upp á gagnreynd úrræði á borð við PMTO, sem studd eru rannsóknum sem sýna fram á að úrræðið virki og breyti lífi fjölskyldna til hins betra. Allar viðhorfskannanir á vegum velferðarsviðs sýni að foreldrar eru mjög ánægðir og mæla með PMTO fyrir aðra.
Hér er hægt að lesa meira um PMTO. Foreldrar sem hafa áhuga á að taka þátt í námskeiði geta bókað símtal frá ráðgjafa til að ræða málin.