Máli Sérverks ehf. gegn Reykjavíkurborg lokið með sýknudómi Hæstaréttar

Hús Hæstaréttar

Hæstiréttur Íslands staðfesti  í dag dóma Landsréttar og Héraðsdóms Reykjavíkur um sýknu Reykjavíkurborgar af kröfu Sérverks ehf. um endurgreiðslu innviðagjalds sem samið var um í tengslum við kostnaðarþátttöku lóðarhafa vegna uppbyggingar í Vogabyggð.

Í dómi Hæstaréttar kemur fram að um sé að ræða samning af einkaréttarlegum toga þar sem lóðarhafar skuldbundu sig til að greiða tiltekið endurgjald fyrir þá hagsmuni er samkomulagið færði þeim, m.a. breytta notkun lóða og aukinn og breyttan byggingarrétt á þeim. Þannig hafi umrætt samkomulag hvorki falið í sér skatt né þjónustugjald.

Þá kemur jafnframt fram í dómi Hæstaréttar að ekkert hafi komið fram í málinu sem benti til annars en að lóðarhafar hefðu gengið til samkomulagsins án þvingunar og á viðskiptalegum grundvelli. Því var ekki fallist á að aðstöðumunur hefði verið milli samningsaðila.

Þá er því hafnað í dómi Hæstaréttar að Reykjavíkurborg hafi með samkomulaginu brotið gegn óskráðum meginreglum stjórnsýsluréttarins um jafnræði, málefnaleg sjónarmið og meðalhóf. Þá telur Hæstiréttur að hvorki sé ómálefnalegt né andstætt lögum að verja tekjum sem sveitarfélög hafi af eignum sínum til rækslu lögbundinna verkefna.

Með dómi Hæstaréttar er málinu að fullu lokið en Sérverk ehf. hafði fengið heimild til áfrýjunar á dómi Landsréttar til Hæstaréttar þar sem málið var talið hafa fordæmisgildi um þau atriði sem þar reyndi á.