Kolefnishlutleysi 2030. Hvernig? Loftslagsfundur Festu og Reykjavíkurborgar 2022
Árlegur Loftslagsfundur Festu og Reykjavíkurborgar fer fram fimmtudaginn 10. nóvember klukkan 13:00 til 16:00 í Hátíðarsal Háskóla Íslands.
Í ár eflum við fyrirtæki sem vilja ná fram kolefnishlutleysi í sínum rekstri fyrir árið 2030. Viðburðurinn er opinn fyrir öll.
Gestir eru hvattir til að nýta sér almenningssamgöngur og vistvæna ferðamáta.
Fundurinn verður einnig í beinu streymi.
Fræðsla um kolefnishlutleysi
Þungamiðja fundarins í ár mun liggja í fræðsluerindum – leitað var til þeirra rúmlega 170 fyrirtækja/stofnana sem hafa undirritað Loftslagsyfirlýsinguna við mótun fræðsluerinda ársins.
- Til hvers og hvernig mælum við losun gróðurhúsalofttegunda frá rekstri?
- Hvernig skilgreinum við kolefnishlutleysi í rekstri og hvaða skref þarf að taka til að ná því?
- Hvernig mælum við losun frá rekstri og virðiskeðju, setjum okkur markmið og aðgerðaáætlun?
- Hvernig geta opinber útboð og innkaup stuðlað að kolefnishlutleysi?
- Hvað er í vændum fyrir fyrirtæki þegar kemur að úrgangsmálum og nýjum hringrásarhagkerfislögum?
- Grípandi dæmisögur - Fyrirtæki sem færast markvisst í átt að kolefnishlutleysi
Fyrirtæki bætast í hóp þátttakenda í Loftslagyfirlýsingunni
Áður en formleg dagskrá hefst klukkan 12:30 munu þau fyrirtæki sem hafa bæst við sem þátttakendur í Loftslagsyfirlýsingunni á árinu skrifa formlega undir ásamt Degi B. Eggertssyni borgarstjóra og Tómasi N. Möller framkvæmdastjóra Festu. Á heimasíðu Festu má kynna sér hvað felst í yfirlýsingunni og bætast í þann hóp öflugra fyrirtækja sem hafa skrifað undir.
Dagskráin hefst klukkan 13:00
- Stefán Örn Snæbjörnsson, fulltrúi ungmenna og kjörinn Ungur umhverfissinni árið 2021-2022, opnar fundinn.
- Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
- Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
- Tómas N. Möller formaður Festu
Fundarstjóri: Nanna Elísa Jakobsdóttir viðskiptastjóri á iðnaðar og hugverkasviði hjá Samtökum iðnaðarins
Kaffihlé 13:45-14:00
Kolefnishlutleysi í rekstri - hvað er það og hvernig forðumst við grænþvott?
Birgitta Steingrímsdóttir, sérfræðingur í teymi hringrásarhagkerfisins hjá Umhverfisstofnun.
____________
Opinber innkaup og útboð - hvernig geta áherslur og kvaðir í opinberum útboðum nýst í vegferðinni að kolefnishlutleysi?
Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, verkefnastjóri umhverfismála á skrifstofu framkvæmda og viðhalds hjá Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar
____________
Við höfum sett okkur markmið um kolefnishlutleysi - hvað erum við að gera?
Dæmisögur fyrirtækja sem hafa undirritað Loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar:
Science Based Targets Initiative aðferðafræðin - Marel
Þorsteinn Kári Jónsson, forstöðumaður sjálfbærni og samfélagstengsla
Kolefnishlutlaus framleiðsla og vottun frá B-corporation - 66° Norður
Bjarney Harðardóttir, Head of Brand
____________
Hvernig mælum við losun frá rekstri og virðiskeðju og setjum fram aðgerðaráætlun?
Sigurpáll Ingibergsson, gæðastjóri Vínbúðanna og fulltrúi í sérfræðingahópi um Loftslagsmæli Festu
Stóra og mikilvæga verkefnið – Innleiðum hringrásarhagkerfi. Úrgangsmál fyrirtækja.
Freyr Eyjólfsson - verkefnastjóri hringrásarhagkerfisins hjá Sorpu
____________
Við höfum sett okkur markmið um kolefnishlutleysi - hvað erum við að gera?
Dæmisögur fyrirtækja sem hafa undirritað Loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar.
Kolefnishlutleysi í steinsteypu - Hornsteinn
Sigríður Ósk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri umhverfismála
Hlutverk stafrænnar þjónustu í átt að kolefnishlutleysi – Júní
Guðmundur Sigurðsson, hönnunarstjóri