Kolefnishlutleysi 2030. Hvernig? Loftslagsfundur Festu og Reykjavíkurborgar 2022

Loftslagsfundur Festu og Reykjavíkurborgar 2022

Árlegur Loftslagsfundur Festu og Reykjavíkurborgar fer fram fimmtudaginn 10. nóvember klukkan 13:00 til 16:00 í Hátíðarsal Háskóla Íslands.

Í ár eflum við fyrirtæki sem vilja ná fram kolefnishlutleysi í sínum rekstri fyrir árið 2030. Viðburðurinn er opinn fyrir öll.

Gestir eru hvattir til að nýta sér almenningssamgöngur og vistvæna ferðamáta.

Fundurinn verður einnig í beinu streymi.

Fræðsla um kolefnishlutleysi

Þungamiðja fundarins í ár mun liggja í fræðsluerindum – leitað var til þeirra rúmlega 170 fyrirtækja/stofnana sem hafa undirritað Loftslagsyfirlýsinguna við mótun fræðsluerinda ársins.

  • Til hvers og hvernig mælum við losun gróðurhúsalofttegunda frá rekstri?
  • Hvernig skilgreinum við kolefnishlutleysi í rekstri og hvaða skref þarf að taka til að ná því?
  • Hvernig mælum við losun frá rekstri og virðiskeðju, setjum okkur markmið og aðgerðaáætlun?
  • Hvernig geta opinber útboð og innkaup stuðlað að kolefnishlutleysi?
  • Hvað er í vændum fyrir fyrirtæki þegar kemur að úrgangsmálum og nýjum hringrásarhagkerfislögum?
  • Grípandi dæmisögur - Fyrirtæki sem færast markvisst í átt að kolefnishlutleysi

Fyrirtæki bætast í hóp þátttakenda í Loftslagyfirlýsingunni

Áður en formleg dagskrá hefst klukkan 12:30 munu þau fyrirtæki sem hafa bæst við sem þátttakendur í Loftslagsyfirlýsingunni á árinu skrifa formlega undir ásamt Degi B. Eggertssyni borgarstjóra og Tómasi N. Möller framkvæmdastjóra Festu. Á heimasíðu Festu má kynna sér hvað felst í yfirlýsingunni og bætast í þann hóp öflugra fyrirtækja sem hafa skrifað undir.

Dagskráin hefst klukkan 13:00

  • Stefán Örn Snæbjörnsson, fulltrúi ungmenna og kjörinn Ungur umhverfissinni árið 2021-2022, opnar fundinn.
  • Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
  • Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
  • Tómas N. Möller formaður Festu

Fundarstjóri: Nanna Elísa Jakobsdóttir viðskiptastjóri á iðnaðar og hugverkasviði hjá Samtökum iðnaðarins

Kaffihlé 13:45-14:00

Kolefnishlutleysi í rekstri - hvað er það og hvernig forðumst við grænþvott?

Birgitta Steingrímsdóttir, sérfræðingur í teymi hringrásarhagkerfisins hjá Umhverfisstofnun.

____________

Opinber innkaup og útboð - hvernig geta áherslur og kvaðir í opinberum útboðum nýst í vegferðinni að kolefnishlutleysi?

Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, verkefnastjóri umhverfismála á skrifstofu framkvæmda og viðhalds hjá Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar

____________

Við höfum sett okkur markmið um kolefnishlutleysi - hvað erum við að gera?

Dæmisögur fyrirtækja sem hafa undirritað Loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar:

Science Based Targets Initiative aðferðafræðin - Marel

Þorsteinn Kári Jónsson, forstöðumaður sjálfbærni og samfélagstengsla

Kolefnishlutlaus framleiðsla og vottun frá B-corporation - 66° Norður

Bjarney Harðardóttir, Head of Brand

____________

Hvernig mælum við losun frá rekstri og virðiskeðju og setjum fram aðgerðaráætlun?

Sigurpáll Ingibergsson, gæðastjóri Vínbúðanna og fulltrúi í sérfræðingahópi um Loftslagsmæli Festu

Stóra og mikilvæga verkefnið – Innleiðum hringrásarhagkerfi. Úrgangsmál fyrirtækja.

Freyr Eyjólfsson - verkefnastjóri hringrásarhagkerfisins hjá Sorpu

____________

Við höfum sett okkur markmið um kolefnishlutleysi - hvað erum við að gera? 

Dæmisögur fyrirtækja sem hafa undirritað Loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar.

Kolefnishlutleysi í steinsteypu - Hornsteinn

Sigríður Ósk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri umhverfismála

Hlutverk stafrænnar þjónustu í átt að kolefnishlutleysi – Júní

Guðmundur Sigurðsson, hönnunarstjóri