Innritun í grunnskóla hefst í vikulok

Bók um upphaf skólagöngu.

Nýtt innritunarferli fyrir grunnskóla Reykjavíkur hefst í lok vikunnar.  Það er skýrt og einfalt því ef barnið þitt á að byrja 1. bekk í hverfisskóla þá þarf einungis að staðfesta það inni á Mínum síðum á reykjavik.is.

Vilji foreldri/forsjáraðili sækja um skóla í öðru skólahverfi er það gert á sama stað. Einnig er hægt að  afþakka skólavist í grunnskólum Reykjavíkur. Skólavist er afþökkuð t.d. vegna flutninga erlendis, flutninga í önnur sveitarfélög eða vegna þess að barnið fer í sjálfstætt starfandi grunnskóla.

Foreldrar/forsjáraðilar fá ítarlegri upplýsingar um skólabyrjun og komið er til móts við þarfir barna sem geta verið af ýmsu tagi. Hægt er að óska eftir aukasamtali við umsjónarkennara áður en kennsla hefst og ekki er beðið um neinar viðkvæmar persónuupplýsingar um barnið í innritunarferlinu sjálfu.

Öll börn með lögheimili í Reykjavík, sem verða 6 ára á árinu, fá barnabók um skólabyrjun. Í bókinni er sagt frá Fjólu sem er líkt og þau að byrja í 1. bekk grunnskóla. Bókin um Fjólu er líka aðgengileg á vefsíðu um skólabyrjun á íslensku, ensku og pólsku.