Hvernig byggjum við lífsgæðaborg?
Aldrei hafa fleiri nýjar íbúðir komið inn á húsnæðismarkað í Reykjavík eins og síðustu ár. Reykjavíkurborg stefnir á að bæta í þennan fjölda og á árvissum kynningarfundi á föstudag fer borgarstjóri yfir þessa miklu uppbyggingu.
Í dag eru nærri 2.500 íbúðir í byggingu víðs vegar um borgina, auk fjölda íbúða sem hafa verið samþykktar eða eru í skipulagsferli. Fjöldi íbúða á þróunarsvæðum, í skipulagsferli, samþykktu deiliskipulagi og íbúðir í byggingu eru rúmlega 26 þúsund. Til samanburðar er fjöldi íbúða í borginni í dag um 58 þúsund.
Kynningarfundurinn verður í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur, föstudaginn 4. nóvember kl. 9–11 og má sjá
Auk þess að fara yfir staðreyndir um uppbyggingu íbúða í dag og hver verða helstu framtíðarhverfin, verður athyglinni beint að gæðum byggðar og lífsgæðum íbúa.
Reynsla Finna af húsnæðisuppbyggingu
Sérstakur gestur borgarstjóra verður Jan Vapaavuori, fv. borgarstjóri Helsinki og húsnæðismálaráðherra Finnlands. Hann mun gefa okkur innsýn í reynslu Finna af húsnæðisuppbyggingu og skoða þætti heildstæðrar og sjálfbærrar húsnæðisstefnu. Jan segir að farsæl húsnæðisstefna þurfi að byggja á skýrum markmiðum, raunsæi og að vera samkvæm sjálfri sér. „Þetta snýst ekki bara um heimili okkar, heldur um lífsgæðin,“ segir hann.
Mikilvægi borgarhönnunar og arkitektúrs
Nokkrir fyrirlestrar tengjast góðri hönnun borgar og gildi arkitektúrs. Edda Ívarsdóttir, borgarhönnuður, segir okkur frá hvað skref borgin er að taka til að tryggja gæðin í umhverfi borgarinnar og hvernig hverfin eigi að halda sínum einkennum. „Við erum ekki öll steypt í sama mót og ólík búsetuform eru nauðsynleg til að skapa fjölbreytta og líflega byggð,“ segir Edda.
Margrét Harðardóttir, arkitekt, ætlar að líta á arkitektúrinn í borginni og gefa okkur nokkur dæmi sem vekja til umhugsunar. „Við erum nokkuð sammála um hvað við viljum. Við viljum gæði, mannlíf og við viljum sögu,“ segir Margrét, „En það tekst ekki alltaf sem skyldi. Þannig að ég ætla finna dæmi sem sýna okkur það svart á hvítu að það er ekki alltaf nóg að segja fallegu orðin.“
Hildur Gunnlaugsdóttir, arkitekt, ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, því hún ætlar að nálgast samgöngumannvirki með nýjum hætti. „Bílastæðahús hafa haft neikvæða ímynd, þótt grá og fremur óvistleg, oft jafnvel kvíðvænlegur valkostur,“ segir Hildur og hún ætlar að sýna okkur dæmi um hvernig við getum breytt þessu.
Tjarnarsalur og streymi
Kynningarfundurinn verður í Tjarnarsal ráðhússins eins og áður segir og er gert ráð fyrir góðri aðsókn á föstudag 4. nóvember. Húsið opnar kl. 8:30 og verður þá boðið upp á morgunhressingu. Fundurinn hefst kl. 9:00.