Hverfastöðin Fiskislóð hlýtur BREEAM hönnunarvottun

Fiskislóð

Ný hverfastöð borgarinnar við Fiskislóð 37c hefur hlotið hönnunarvottun samkvæmt alþjóðlega viðurkennda vottunarkerfinu BREEAM.

Hönnunarvottunin er staðfesting á því að hönnun byggingarinnar uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru í BREEAM vottunarkerfinu um vistvæna hönnun. Hlaut byggingin einkunnina „Very Good“ eða 65,5%. Þar með eru uppfylltar þær kröfur sem gerðar eru um vistvæn mannvirki í Græna planinu hjá Reykjavíkurborg og fellur fjárfestingin því undir fjármögnun með grænum skuldabréfum. Nú er unnið að því að ljúka fullnaðarvottun byggingarinnar.

BREEAM vottun tryggir að við hönnun, byggingu og rekstur mannvirkja sé hugað að öllum þáttum sjálfbærni. Það þýðir að frá upphafi er hugað að líftímakostnaði byggingarinnar, heilsu- og vellíðan notenda hennar á sama tíma og unnið er að því að draga úr umhverfisáhrifum hennar.  

Í BREEAM vottuninni fyrir hverfastöðina við Fiskislóð er lagt mat á fjölmarga mismunandi þætti, svo sem:

  • Umhverfis- og gæðastjórnun við undirbúning og hönnun byggingar sem og á framkvæmdar- og rekstrartíma.
  • Heilsu og vellíðan notenda þar sem áhersla er lögð á birtu og lýsingu, loftgæði og hljóðvist.
  • Orkunýtni byggingarinnar sem og búnaðar sem í byggingunni er.
  • Góð aðstaða fyrir hjólandi og gangandi.
  • Umhverfisvænt efnisval.
  • Hugað að framtíðarþörf og byggingin hönnuð og byggð þannig að hægt er að bæta við hæð á húsið síðar.
  • Úrgangsstjórnun á byggingar- og rekstrartíma.
  • Lágmörkun ýmis konar mengunar t.d. er varðar kælimiðla/frostlög, regnvatn á lóð og ljósmengun.

Græna planið

Sjálfbærnivottun - BREEAM vottun Fiskislóð

Fengin stig innan matsflokks