Hreinsum saman á stóra plokkdeginum

Glærir pokar fullir af rusli sem plokkarar hafa tínt upp. Mynd/Plokk á Íslandi
Glærir pokar fullir af rusli sem plokkarar hafa tínt upp.

Reykjavíkurborg tekur þátt í stóra plokkdeginum sem í ár er haldinn sunnudaginn 24. apríl og hvetur íbúa til að taka þátt. Það er Plokk á Íslandi sem stendur fyrir stóra plokkdeginum og hefur gert það árlega frá árinu 2018. Reykjavíkurborg hefur árum saman staðið fyrir hreinsunarátaki á þessum árstíma, nú síðast undir nafninu Hreinsum saman, sem er sannarlega í anda plokksins og því kjörið að taka höndum saman um plokkstöngina. Reykjavíkurborg hitar upp fyrir stóra plokkdaginn með því að fara í sérstaka vorhreinsun á grenndarstöðvum sem nú stendur yfir.

Starfsfólk Reykjavíkurborgar verður að störfum í borginni á sunnudag. Starfsfólk hverfastöðvanna tekur þátt allt árið meðal annars með því að fjarlægja poka og þiggur einnig ábendingar um fulla ruslastampa en mikilvægt er að troða ekki í tunnur til að forðast að ruslið fjúki burt. Best er að senda þær á ábendingavef borgarinnar.

Sérstök vorhreinsun á grenndarstöðvum

Síðustu daga hefur staðið yfir vorhreinsun á grenndarstöðvum Reykjavíkurborgar. Áætlað er að hreinsun á síðustu stöðvunum ljúki um helgina.

Rusl er alla jafna reglulega hreinsað frá stöðvunum allan ársins hring. Þegar vetri sleppur kemur ýmislegt í ljós sem hefur safnast saman í kringum stöðvarnar og næsta nágrenni þeirra. Núna er því allt umframrusl fjarlægt, stöðvarnar sópaðar og þvegnar auk þess sem ruslið í runnunum í kring er plokkað upp. Mikilvægt er að halda góðri umgengi við stöðvarnar svo þær verði svona fínar áfram og rusl frá þeim berist ekki út í umhverfið.

Alþjóðlegur dagur jarðar og dagur umhverfisins

Það er vel við hæfi að stóri plokkdagurinn sé haldinn á þessum tíma en alþjóðlegur dagur jarðar er í dag föstudag 22. apríl og til viðbótar haldið er upp á dag umhverfisins hér á landi á mánudag 25. apríl.

Plokk á Íslandi er með sinn eigin hóp á Facebook en meðlimir eru í kringum 7.500 manns þannig að það eru margir sem láta sig varða umhverfi sitt. Nánari upplýsingar eru líka á plokkvefnum en þar segir meðal annars um hópinn: „Þar deila meðlimir sigrum og áskorunum í umhverfismálum og þar hvetja meðlimir hvor aðra til dáða og birta myndir af rusli sem tekið hefur verið úr náttúrunni.“

Plokkarar hafa það sem áhugamál að fara um svæði og taka upp, eða plokka, plast, pappa og annað rusl sem fellið hefur til frá íbúum, framkvæmdum eða öðru, svo bæði náttúran og borgarumhverfi líta betur út á eftir.

Að lokum má minna á að fyrir utan plokkstöngina eða góða hanska er glær plastpoki nauðsynlegur til verksins ef fjölnota pokar eru ekki notaðir en einnig er mikilvægt að binda vel fyrir til að innsigla góðan árangur plokksins. Hægt er að skila ruslinu á endurvinnslustöðvar Sorpu.