Hjartað í starfsemi borgarinnar að gera hana betri fyrir börn

Sigríður Indriðadóttir hefur verið ráðin til að styðja stjórnendur í að móta hvetjandi vinnustaðamenningu í fjórum miðstöðvum borgarinnar.

Sigríður Indriðadóttir hefur verið ráðin til að styðja stjórnendur í að móta hvetjandi vinnustaðamenningu í fjórum miðstöðvum borgarinnar. Þaðan fá börn og fjölskyldur þeirra þjónustu í nýrri og breyttri mynd í anda farsældarlaga. Breytt fyrirkomulag þjónustunnar, með auknu samstarfi fagfólks úti í nærumhverfi barnafjölskyldna, kallar á nýja nálgun allra sem að henni koma.  

Segja má að árin í starfi Sigríðar sem frístundaráðgjafa í félagsmiðstöðinni Árseli hafi lagt grunninn að starfsferli hennar. „Þær flottu fyrirmyndir sem ég vann með í frístundastarfinu kenndu mér meðal annars hversu miklu máli skiptir að það sé traust, umboð til athafna, samheldni og liðsheild á vinnustöðum og það hefur alltaf fylgt mér. Það er þess vegna ótrúlega mikilvægt, þegar tekist er á við stór breytingaverkefni sem þetta, að allir starfsmenn séu um borð, hafi jákvætt og lausnamiðað viðhorf og séu tilbúnir að vinna á þeim nótum að samþættingu verkefna og þjónustu. Góð vinnustaðarmenning hefur heldur ekkert pláss fyrir meðvirkni, þannig að ef eitthvað kemur upp þarf að tækla það strax með ákveðnum en friðsamlegum hætti. Jákvæð og hvetjandi vinnustaðarmenning hefur í för með sér að starfsfólki líður vel, og starfsfólk sem líður vel veitir betri þjónustu. BBB verkefnið snýst um að setja barnið í forgrunn og það er aðalatriði í þessu mikilvæga breytingarverkefni.“

Stóraukið samstarf sviða borgarinnar

Allt þetta skiptir miklu máli í þeim miklu breytingum sem nú eru að verða í starfsemi skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs. Starfsemi sviðanna í hverfunum mun samtvinnast og styrkjast í ljósi farsældarlaganna og verkefnisins Betri borg fyrir börn sem verið að innleiða um alla borg. Starfsfólk beggja sviða hefur sameinast í fjórum miðstöðvum, sem áður voru þjónustumiðstöðvar velferðarsviðs. Þessum spennandi tímum fylgir heilmikið rót og miklar breytingar. Þar kemur Sigríður til skjalanna en hlutverk hennar snýr meðal annars að því að styðja við lykilstjórnendur og aðstoða við að byggja upp og samþætta þjónustu og menningu. Hún kemur einnig að praktískum lausnum sem snúa að aðgengis- og tæknimálum. Á næstu mánuðum gerir hún jafnframt ráð fyrir að vera með námskeið, fræðslu og vinnustofur fyrir starfsfólk.

Reynsla Sigríðar nýtist henni með margvíslegum hætti í þessu starfi. Eftir að hún hætti í Árseli starfaði hún í sjö ár sem grunnskólakennari á Akranesi. Síðar vann hún sem mannauðsráðgjafi á leikskólasviði Reykjavíkurborgar sem síðar varð hluti af skóla- og frístundasviði. Um margra ára skeið var hún svo forstöðumaður mannauðsmála, fyrst hjá Mosfellsbæ, síðar Mannviti og loks hjá Íslandspósti. Hún hefur því góða innsýn í starfsemi sveitarfélaga sem og starfsumhverfi borgarinnar.

Mikilvægt að öll hafi augun á sama markmiði

Sigríður hefur á undanförnum vikum hitt starfsfólk allra miðstöðvanna fjögurra og segir greinilegt að þar vinnur fólk með mikla sérþekkingu á sínu sviði, sem komi til með að leggja margt mikilvægt til málanna þeirri vinnu sem framundan er. Hún hefur því góða tilfinningu fyrir verkefninu en segir kórónufaraldurinn óneitanlega hafa sett strik í reikninginn. Allt horfi það hins vegar til betri vegar, ekki síst ef starfsfólk hefur augun á sameiginlegu markmiði. „Þar sem ég er í grunninn kennari finnst mér stórkostlega spennandi tækifæri að fá að taka þátt í þessu verkefni sem er hjartað í samstarfinu á milli velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs. Þegar við höfum náð að samstilla okkur og samþætta þjónustuna úti í borgarhlutunum verður þjónustan komin nær börnum og foreldrum, sem er afar mikilvægt og og börnum til farsældar.“