Ný verkefni í göngu- og hjólastígagerð fyrir næsta ár voru kynnt í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar í gær. Heildarlengd stíganna er tæpir 4,3 kílómetrar og er áætlaður kostnaður við þá um 1.080 milljónir króna. Undirbúningur stíganna er kominn mislangt á leið en stefnt er að því að framkvæmdir við þá flesta hefjist á árinu 2023.
Hluti greiddur af samgöngusáttmálanum
Gert er ráð fyrir að hluti verkefnanna verði greiddur af samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins í samræmi við samkomulag þar um en önnur verkefni af viðkomandi liðum fjárfestingaráætlunar, svo sem hjólreiðaáætlun og gerð stíga í eldri hverfum.
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti á fundi sínum að heimila áframhaldandi undirbúning, verkhönnun og gerð útboðsgagna fyrir eftirtaldar stígaframkvæmdir.
Ný verkefni
- Gufunes
- Kringlumýrarbraut/Borgartún - gatnamót
- Vegmúli
- Suðurhlíðar við Kringlumýrarbraut
- Höfðabakki. Hamrastekkur að Höfðabakkabrú og Rafstöðvarvegur – Bæjarháls.
- Elliðaárdalur 3. áfangi, Grænagróf – Dimma, stígagerð og brú.
Áður kynntar stígaframkvæmdir
Á árinu er einnig gert ráð fyrir að halda vinnu áfram við eða ljúka áður kynntum framkvæmdum:
- Sörlaskjól / Faxaskjól.
- Krókháls / Dragháls, frá Höfðabakka að Suðurlandsvegi
- Elliðaárdalur – Stígur í stað hitaveitustokks.
- Rofabær, borgargata.
- Hálsabraut.
- Skógarhlíð, frá Litluhlíð að Miklubraut.
- Réttarholt, Réttarholtsvegur að Sogavegi.
- Háaleitisbraut – Bústaðavegur, gatnamót.
- Arnarnesvegur – stígtengingar við samgöngusáttmálastígana
- Elliðaárdalur – Dimma brú.
- Kjalarnes, Hringvegur (1), Varmhólar – Vallá.
- Arnarnesvegur / Breiðholtsbraut, stígur og brú.
Hjólaborgin Reykjavík
Aukin hlutdeild hjólreiða mun hafa góð áhrif á samgöngur, umhverfi, lýðheilsu, lífið í borginni og skapa betri borg. Hjólreiðaáætlun Reykjavíkur 2021-2025 var samþykkt vorið 2021. Markmið áætlunarinnar er að auka hlutdeild hjólreiða í ferðum í borginni en stefnt er að því að að minnsta kosti 10% allra ferða í borginni verði farnar á hjóli árið 2025.
- Skoða yfirlitskynningu á verkefnunum en þar er nánari lýsing á hverri framkvæmd
- Skoða hjólreiðaáætlun Reykjavíkur 2021-2025