Framkvæmt fyrir 1,1 milljarð í nýbyggingarhverfum

Framkvæmdir

Loftmynd af Reynisvatnsási. Sigurður Ólafur Sigurðsson
Loftmynd af Reynisvatnsási.

Borgarráð hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út ýmsar framkvæmdir í nýbyggingahverfum fyrir 1,1 milljarð króna á þessu ári. Um er að ræða verkefni í Úlfarsárdal, Reynisvatnsási, Norðlingaholti, Sléttuvegi, Brekknaás og Esjumelum. Framkvæmdatímabil er áætlað frá maí fram í nóvember.

Um er að ræða gatnagerð og ýmiss konar yfirborðsfrágang eins og:

  • Gatnagerð
  • Gangstéttir
  • Göngu og hjólastíga
  • Torg og bílastæði
  • Malbikun
  • Jöfnun yfirborðs, gróðursetningu og ræktun

Úlfarsárdalur

Framkvæmdir eru m.a. gangstéttar, stígagerð og ræktun í takti við uppbyggingu íbúðabyggðar. Við Úlfarsbraut, við Dalskóla og bókasafn verður lokafrágangur við stoðveggi, setpalla og gróðursetningu. Áætlað er að þessar framkvæmdir kosti 200 milljónir króna.

Reynisvatnsás

Framkvæmdir við gerð gangstétta og stíga. Kostnaðaráætlun hljóðar uppá 20 milljónir króna.

Norðlingaholt

Færsla á rampa frá Breiðholtsbraut, frágangur á hljóðmönum, gerð göngu og hjólastígs og steypt stétt við Elliðabraut. Kostnaðaráætlun hljóðar uppá 100 milljónir króna.

Sléttuvegur

Framkvæmdir eru við gerð gönguleiða og frágang í hverfinu. Kostnaðaráætlun hljóðar uppá 30 milljónir króna.

Brekknaás

Framkvæmdir við gatna- og stígagerð á þéttingareit sem afmarkast af Brekknaás, Selásbraut og Vindás. Kostnaðaráætlun hljóðar uppá 100 milljónir króna.

Esjumelar

Gatnagerð vegna nýrra atvinnulóða. Áætlað er að þessar framkvæmdir kosti 650 milljónir króna.