Fjórar miðstöðvar Reykjavíkurborgar fá ný nöfn

Saman komin til að fagna nýjum nöfnum.

Fjórar miðstöðvar Reykjavíkurborgar, þar sem fram fer margþætt velferðar-, skóla- og frístundaþjónusta, fengu ný nöfn í dag: Vesturmiðstöð, Suðurmiðstöð, Austurmiðstöð og Norðurmiðstöð. Efnt var til nafnasamkeppni sem fjöldi fólks tók þátt í en nokkur hundruð fjölbreyttar tillögur bárust. Dómnefnd fór vel og vandlega yfir tillögurnar og varð að lokum niðurstaðan að kenna miðstöðvarnar við höfuðáttirnar fjórar.

Tillögu að nýju nafni átti Elín Bergsdóttir og voru henni veitt verðlaun við hátíðlega athöfn í dag. Svo skemmtilega vildi til að hún á afmæli í dag og má því segja að verðlaunin sem hún hlaut að launum fyrir gott nafn, ipad Air, hafi líka verið afmælisgjöf.

Í dómnefndinni voru Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs, Jasmina Vajcovic Crnac, leiðtogi Alþjóðteymis velferðarsviðs, Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og Sunna Dís Másdóttir rithöfundur. Vísun í höfuðáttirnar fjórar þótti dómnefnd alþjóðlegt og þjóðlegt á sama tíma. Á Íslandi sé mikil hefð fyrir því að notast við áttirnar í daglegu tali en á sama tíma séu þær auðskiljanlegar flestu fólki, óháð uppruna. Samheitið „miðstöðvar“ þótti dómnefndinni best lýsa tilgangi þeirra sem miðju hvers borgarhluta, auk þess að vísa til miðjunnar sem höfuðborgin er. 

Unnið að verkefninu Betri borg fyrir börn í miðstöðvunum

Miðstöðvarnar voru áður kallaðar þjónustumiðstöðvar og hver þeirra kennd við sitt hverfi. Þegar starfsemi skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs í hverjum borgarhluta var sameinuð í miðstöðvunum var tekin ákvörðun um að endurskoða heiti þeirra.

Í miðstöðvunum fjórum verður unnið að verkefninu Betri borg fyrir börn sem miðar að því að þétta og stórauka samstarf skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs borgarinnar í anda nýrra farsældarlaga. Markmiðið er að færa alla þjónustu nær notendum og samhæfa hana svo hún nýtist börnum og fjölskyldum þeirra sem allra best. 

Miðstöðvarnar fjórar eru eftirfarandi:  

  • Vesturmiðstöð (staðsett á Laugavegi 77)
  • Norðurmiðstöð (Staðsett í Efstaleiti 1)
  • Suðurmiðstöð (staðsett í Álfabakka 10)
  • Austurmiðstöð (staðsett í Hraunbæ 115 og Gylfaflöt 5)

Brúin tengir saman hverfin

Á fundinum í dag sagði Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs, jafnframt frá því að sameinuð frístundamiðstöð fyrir Ártúnsholt, Árbæ, Norðlingaholt, Grafarholt, Úlfarsárdal og Grafarvog hafi fengið nafnið Brúin.  Nafnið vísar í brýrnar sem tengja hverfin í borgarhlutanum, til dæmis Gullinbrú, Höfðabakkabrúna og brúna sem tengir Grafarvog, Grafarholt og Úlfarsárdal saman.