Borgarstjórnarkosningar 2022

Ráðhúsið í Reykjavík

Borgarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 14. maí nk. Skrifstofa borgarstjórnar heldur utan um framkvæmd kosninganna fyrir hönd Reykjavíkurborgar.

Aðsetur yfirkjörstjórnar Reykjavíkur verður í Ráðhúsi Reykjavíkur fram eftir kjördegi og eftir það á talningarstað.

Upplýsingasíða um borgarstjórnarkosningarnar hefur nú verið opnuð en þar er að finna hagnýtar upplýsingar fyrir kjósendur og frambjóðendur. 

Framboðsfrestur til borgarstjórnarkosninga er til kl. 12:00 á hádegi þann 8. apríl 2022.

Yfirkjörstjórn tekur við framboðum miðvikudaginn 6. apríl og föstudaginn 8. apríl milli kl. 11:00 og 12:00, báða dagana í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Eins og áður segir fara borgarstjórnarkosningarnar fram laugardaginn 14. maí nk. og verða kjörstaðir í Reykjavík opnir frá kl. 9:00–22:00.

Upplýsingasíðan verður uppfærð reglulega fram að kosningum.