Ástand Tjarnarinnar fer batnandi

Sýnataka á Tjörninni.

Vistfræðilegt ástand Tjarnarinnar er hægt en örugglega að hnikast til betri vegar, samkvæmt mælingum. Undanfarna daga hafa starfsmenn frá Náttúrufræðistofu Kópavogs safnað sýnum til að rannsaka vistkerfið í Reykjavíkurtjörn.

Reykjavíkurtjörn, eða Tjörnin, hvílir í Kvosinni í Reykjavík, í um tveggja metra hæð yfir sjó. Hún er um 8,7 hektarar að stærð og að auki eru minni tjarnir í Vatnsmýrinni, Hústjörn og Vatnsmýrartjörn.

Samhliða fólksfjölgun og þéttbýlismyndun í Reykjavík hefur Tjörnin og vatnasviðið allt orðið fyrir margskonar röskun og álagi. Frá árinu 2015 hafa starfsmenn umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar fylgst með ástandi Tjarnarinnar með reglubundnum og samræmdum hætti í samvinnu við Náttúrustofu Kópavogs sem hefur umsjón með rannsókninni. Fylgst er með framvindu gróðurs og dýrasamfélaga í Reykjavíkurtjörn og Vatnsmýri og leitast við að varpa ljósi á lífríki og vistfræðilegt ásigkomulag. Rannsóknirnar hafa náð til efna- og eðlisþátta, vatnagróðurs, smádýralífs og hornsíla.

Tekin eru sýni til mælinga á blaðgrænu og næringarefnum, sem gefa vísbendingar um álagsþætti af völdum mengunar. Smádýrum hefur verið safnað í gildrur og gróður kortlagður með þekjumati og tegundagreiningu. Loks hefur hornsílum verið safnað í þeim tilgangi að fylgjast með þéttleika þeirra, fæðu og kynþroska og afla betri upplýsinga um árgangaskiptingu.

Nú þegar búið að safna sýnum þá hefst vinnan við að greina ástandið á lífríki Tjarnarinnar. Mælingar undanfarinna ára gefa til kynna að vistfræðilegt ástand Tjarnarinnar sé hægt en örugglega að hnikast til betri vegar.

Þeir sem eru áhugasamir um niðurstöður rannsóknanna á vistkerfi Tjarnarinnar geta nálgast þær á heimasíðu Náttúrustofu Kópavogs.