Ástand Tjarnarinnar fer batnandi
Vistfræðilegt ástand Tjarnarinnar er hægt en örugglega að hnikast til betri vegar, samkvæmt mælingum. Undanfarna daga hafa starfsmenn frá Náttúrufræðistofu Kópavogs safnað sýnum til að rannsaka vistkerfið í Reykjavíkurtjörn.
Reykjavíkurtjörn, eða Tjörnin, hvílir í Kvosinni í Reykjavík, í um tveggja metra hæð yfir sjó. Hún er um 8,7 hektarar að stærð og að auki eru minni tjarnir í Vatnsmýrinni, Hústjörn og Vatnsmýrartjörn.
Samhliða fólksfjölgun og þéttbýlismyndun í Reykjavík hefur Tjörnin og vatnasviðið allt orðið fyrir margskonar röskun og álagi. Frá árinu 2015 hafa starfsmenn umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar fylgst með ástandi Tjarnarinnar með reglubundnum og samræmdum hætti í samvinnu við Náttúrustofu Kópavogs sem hefur umsjón með rannsókninni. Fylgst er með framvindu gróðurs og dýrasamfélaga í Reykjavíkurtjörn og Vatnsmýri og leitast við að varpa ljósi á lífríki og vistfræðilegt ásigkomulag. Rannsóknirnar hafa náð til efna- og eðlisþátta, vatnagróðurs, smádýralífs og hornsíla.
Tekin eru sýni til mælinga á blaðgrænu og næringarefnum, sem gefa vísbendingar um álagsþætti af völdum mengunar. Smádýrum hefur verið safnað í gildrur og gróður kortlagður með þekjumati og tegundagreiningu. Loks hefur hornsílum verið safnað í þeim tilgangi að fylgjast með þéttleika þeirra, fæðu og kynþroska og afla betri upplýsinga um árgangaskiptingu.
Nú þegar búið að safna sýnum þá hefst vinnan við að greina ástandið á lífríki Tjarnarinnar. Mælingar undanfarinna ára gefa til kynna að vistfræðilegt ástand Tjarnarinnar sé hægt en örugglega að hnikast til betri vegar.
Þeir sem eru áhugasamir um niðurstöður rannsóknanna á vistkerfi Tjarnarinnar geta nálgast þær á heimasíðu Náttúrustofu Kópavogs.