Áratugur uppbyggingar íbúða – upptaka frá fundi
Tjarnarsalurinn í Ráðhúsi Reykjavíkur var þétt setinn á árvissum kynningarfundi borgarstjóra um uppbyggingu íbúða og mikill fjöldi fylgdist einnig með á streymi fundarins. Hægt er að skoða upptöku frá fundinum á vefsíðunni reykjavik.is/ibudir
Í kynningu Dags B. Eggertssonar borgarstjóra kom fram að heildarfjöldi nýrra íbúða í ár gæti orðið um 1.200 og væri það þá fjórða árið í röð sem fjölgun íbúða væri yfir þúsund. Aldrei hafa fleiri nýjar íbúðir komið inn á húsnæðismarkað í Reykjavík eins og undanfarin ár. Borgarstjóri sagði að það væru þó blikur á lofti í framboði nýrra íbúða. Það væri ekki vegna skorts á skipulagi og framboði lóða í Reykjavík, heldur vegna takmarkana fjármálastofnana. „Það virðist vera eitthvað hökt á fjármögnun nýrra verkefna,“ sagði borgarstjóri. „Við verðum að hafa augun á fjármálastofnunum vegna þess að þær ráða að mestu leyti hraðanum í uppbyggingunni,“ sagði Dagur. Þá hafi vaxtaákvarðanir Seðlabankans einnig mikil áhrif á framkvæmdafjármögnun.
Unnið er að samningi ríkis og Reykjavíkurborgar um húsnæðisuppbyggingu og markmið gerðu ráð fyrir uppbyggingu um 16.000 íbúða í Reykjavík á næstu 10 árum. Dagur bjóst við að gengið yrði frá samningi við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun öðru hvoru megin við áramót. Dagur sagði að Reykjavíkurborg myndi áfram leggja áherslu á hagkvæmar og grænar íbúðir, en hlutur þeirra verði um 35% húsnæðis, en 65% fyrir almennan markað.
Útsendingu frá kynningarfundinum má skoða í heild á vefsíðunni reykjavik.is/ibudir