Áratugur Reykjavíkur í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis

Íbúðarhúsnæði í Úlfarsárdal.

Reykjavíkurborg stendur fyrir opnum fundi um framtíðaruppbyggingu íbúðarhúsnæðis í borginni í Ráðhúsinu, föstudaginn 1. apríl, kl. 9

  • Allt að 2.000 íbúðir byggðar árlega

  • Uppbyggingaraðilar kynna áform sín á þessu ári

  • Niðurstöður úr samkeppni um grænt húsnæði framtíðar

Á fundinum mun Dagur B. Eggertsson borgarstjóri fara yfir nýjar áherslur í uppbyggingu íbúða í borginni. Borgin hyggst hraða uppbyggingu og mun úthluta lóðum fyrir um 1.000 íbúðir á ári. Allt að fjórðungi lóða verður úthlutað til óhagnaðardrifinna félaga.  

Hvar, hvenær og hvað byggja einkaaðilar

Fjölmargir aðilar munu kynna áform sín um uppbyggingu sem hefst á þessu ári. Samkvæmt húsnæðisáætlun borgarinnar hyggjast einkaaðilar byggja allt að 1.000 íbúðir á ári á næstu fimm árum. Því stefnir í að allt að 2.000 íbúðir verði byggðar árlega á næstu árum í Reykjavík einni.

Grænt húsnæði framtíðar

Á fundinum verða enn fremur kynntar niðurstöður dómnefndar sem hefur valið fimm  teymi til að þróa svokallað grænt húsnæði, þ.e. byggingar með léttu vistspori á fimm reitum í borginni. Gert er ráð fyrir að þessir aðilar vinni í samstarfi við borgina á hverjum reit.

Öll þessi áform eru hluti af Græna planinu sóknaráætlun Reykjavíkurborgar.

 

Dagskrá

Húsnæði fyrir alla - 10.000 íbúðir á fimm árum

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri

Nýir uppbyggingarreitir

Orkureitur

Gunnar Thoroddsen, stjórnarformaður íslenskra fasteigna

Heklureitur

 - 
Örn Kjartansson, framkvæmdastjóri Framkvæmdafélags Laugavegar ehf.

Ártúnshöfði

 - 
Sigurður Smári Gylfason, framkvæmdastjóri Þorpsins.

Haukahlíð 2 

- Sigurlaug Sigurjónsdóttir, arkitekt hjá ASK arkitektum.

 

Óhagnaðardrifin húsnæðisuppbygging í sókn

Byggingarfélag námsmanna, Arnarbakki 

- Böðvar Jónsson, framkvæmdastjóri Byggingarfélags námsmanna

Búseti, Ártúnshöfði og Kirkjusandur 

- Bjarni Þór Þórólfsson, framkvæmdastjóri Búseta

Bjarg íbúðafélag, Brekknaás, Háaleitisbraut

- Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs

 

Íbúðarhúsnæði fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur

Gufunes

Hilmar Steinar Sigurðsson framkvæmdastjóri - Hverfisins Gufunes ehf.

Rökkvatjörn 2

Gísli Örn Bjarnhéðinsson, framkvæmdastjóri Urðarsels

 

Lífsgæðakjarnar eldri borgara

Sléttuvegur- Hrafnista

Ariel Pétursson, stjórnarformaður Sjómannadagsráðs höfuðborgarsvæðisins

 

Grænt húsnæði framtíðarinnar

Grænar uppbyggingarlóðir – niðurstöður samkeppni

Hulda Hallgrímsdóttir og Hilmar Hildar Magnúsarson, verkefnisstjórar hjá atvinnu- og borgarþróunarteymi Reykjavíkurborgar.

Fundurinn verður í beinu streymi