Að móta hverfin í Laugardal og nágrenni
Íbúum er boðið á hugmyndaleit fyrir nýtt hverfisskipulag í Laugardal 30. og 31. mars kl. 9-22 á Laugardalsvelli og sunnudaginn 2. apríl kl. 11-16. Um er að ræða hverfin í Laugarnesi, Langholt, Heimunum og Vogunum.
Hugmyndaleitin stendur yfir dagana 30.-31. mars í stúkunni á Laugardalsvelli milli klukkan 9–22. Einnig sunnudaginn 2. apríl kl. 11-16. Þar mun fólk skiptast á hugmyndum um framtíð svæðsins sem síðan verða nýttar í hverfisskipulagið. Sérfræðingar borgarinnar taka vel á móti íbúum og það verður heitt á könnunni.
Undanfarnar vikur hafa nemendur í 6. bekk í Laugarnesskóla, Vogaskóla og Langholtsskóla og 7. bekki í Laugalækjarskóla gert módel af hverfunum sínum.
Módelin eru hluti af skapandi samráði vegna undirbúnings hverfisskipulags fyrir Laugardal; borgarhluta 4. Borgarhlutinn nær alveg frá Túnum í vestri til hinnar nýju Vogabyggaðar í austri og frá Laugarnesi í norðri til Suðurlandsbrautar í suðri og alveg að Miklubraut austan við Grensásveg og upp að Elliðaám. Í næstu viku verður svo sýning á módelunum fyrir nemendur skólanna fjögurra og fjölskyldur þeirra undir stúkunni á Laugardalsvelli. Þar verður einnig opið hús í næstu viku fyrir íbúa hverfanna í Laugardal.
Foreldrar hvattir til að mæta
Foreldrar eru væntanlega spenntir að sjá afurðir barna sinna og eru hvattir til að koma í heimsokn í rýmið í stúlkunni a Laugardalsvelli.
Hægt er að kynna sér málið betur á skipulag.reykjavik.is.