Umbreyting þjónustu í þágu borgarbúa – stafræn vegferð Reykjavíkurborgar
Samgöngur Velferð
Græna plan Reykjavíkurborgar kveður á um að hraða skuli stafrænni umbreytingu með það að markmiði að bæta þjónustu borgarinnar.
Fjárfesting í tækniþróun snýst um að gera lífið betra fyrir borgarbúa. Að fólk geti óskað eftir þjónustu á einfaldan hátt, fylgst með stöðu mála og átt í samskiptum við borgina þegar og þar sem þeim hentar.
Föstudaginn 11. júní verður haldinn opinn rafrænn viðburður undir yfirskriftinni Umbreyting á þjónustu í þágu borgarbúa – stafræn vegferð Reykjavíkurborgar. Fundurinn hefst klukkan 9.00 og lýkur klukkan 12.00. Viðburðinum verður streymt á Facebook og á reykjavik.is.
Þessi opni rafræni viðburður beinir kastljósinu á þá vegferð sem nú er að hefjast. Farið verður yfir stefnuna og framtíðarsýn borgarinnar þegar kemur að stafrænni vegferð, nauðsynlegar breytingar í tækniumhverfinu, framkvæmdina, aðferðir og áþreifanleg verkefni. Í lok fundarins verða pallborðsumræður þar sem farið verður sérstaklega yfir "kúltúrhakk" sem eru ákveðnar breytingar sem grípa þarf til innan fyrirtækja til þess að skapa jákvæða vinnustaðamenningu og ná betri árangri.
Dagskrá:
9:00-9:20
Græna planið - Stafræn umbreyting Reykjavíkurborgar
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
9:20-9:30
Hvað er eiginlega að gerast hérna?
Reykjavík sem manntæknifyrirtæki
Óskar J. Sandholt, sviðstjóri Þjónustu- og nýsköpunarsviðs
Landslagsbreytingar í UT umhverfinu
9:35-9:50
Hvernig sköpum við virði?
Hagnýting gagna hjá Reykjavíkurborg
Óli Páll Geirsson, skrifstofustjóri gagnaþjónustu
9:50-10:05
Nýtt landslag í mótun
Umbylting í stærsta upplýsingatækniumhverfi landsins
Friðþjófur Bergmann, skrifstofustjóri upplýsingatækniþjónustu
Hvernig framkvæmum við stafræna vegferð
10:10-10:20
Hvernig lóðsum við flotann í höfn ?
Stafrænir leiðtogar, ný hlutverk innan borgarinnar
Edda Jónsdóttir, teymisstjóri stafrænna leiðtoga
10:20-10:30
Skilvirkni, hagkvæmni, samhengi, fagmennska
Stafræna framleiðslulínan
Kristín Berg Bergvinsdóttir, yfirframleiðandi stafrænnar umbreytingar
10:30-10:40
Út fyrir boxið, inn fyrir rammann.
Markviss verkefna- og vörustýring
Hugrún Ösp Reynisdóttir, deildarstjóri verkefna- og vörustýringar
Nýskapandi aðferðir
10:45-10:55
Frá áskorun til afurðar.
Íbúaleidd hönnun opinberrar þjónustu
Arna Ýr Sævarsdóttir, skrifstofustjóri þjónustu og umbreytinga
10:55-11:05
Hönnum'etta!
Stafræn ásýnd borgar
Ólafur Sólimann Helgason, deildarstjóri vefdeildar
11:05-11:15
Hluti af lausninni
Skapandi lögfræði
Aldís Geirdal Sverrisdóttir, teymisstjóri lögfræðiþjónustu
Pallborðsumræður - Kúltúrhakk
11:20-11:45
Panell
Arna Ýr Sævarsdóttir, skrifstofustjóri þjónustu og umbreytinga
Friðþjófur Bergmann, skrifstofustjóri upplýsingatækniþjónustu
Karen María Jónsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu sviðsstjóra
Óli Páll Geirsson, skrifstofustjóri gagnaþjónustu
Þröstur Sigurðsson, skrifstofustjóri stafrænnar Reykjavíkur
11:45-12:00
Litið til framtíðar
Dóra Björt Guðjónsdóttir, formaður mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs
Spyrill og kynnir verður Bergur Ebbi Benediktsson, framtíðarfræðingur. Stjórn útsendingar verður í höndum Sahara.