Stóri plokkdagurinn verður haldinn hátíðlegur fjórða árið í röð laugardaginn 24. apríl 2021. Dagurinn er haldinn fyrir tilstuðlan sjálfboðaliða. Reykjavíkurborg hvetur borgarbúa til að taka þátt í deginum og fegra nærumhverfið.
Stóri plokkdagurinn hefst með því að stelpurnar í Náttúruklúbbnum í Laugarneshverfinu opna Stóra plokkdaginn ásamt Forseta Íslands, umhverfisráðherra og formanni umhverfis- og heilbrigðisráðs Reykjavíkurborgar klukkan 10 á laugardagsmorgun. Athöfnin fer fram í Laugardalnum en getur ekki verið fjölmenn sökum sóttvarna.
Reykvíkingar eru hvattir til að plokka í nærumhverfi sínu. Hægt er að senda tilkynningar um staðsetningar ruslapoka að plokki loknu á ábendingavef Reykjavíkurborgar og starfsfólk hverfastöðva borgarinnar sér um að sækja pokana eftir helgina. Mikilvægt er að vera með sóttvarnargrímur og hanska eða plokktangir við plokkstarfið. Ruslið á víðavangi og í trjárunnum er oftast plast eða pappír og því gott að flokka ruslið ef fólk getur farið með það sjálft í flokkun.
Plokk á Íslandi heldur úti virkum hópi á samfélagsmiðinum Facebook þar sem um sjö þúsund meðlimir deila myndum af sínu plokki og sinni útivist. Þar er plokktímabilið 2021 sannarlega hafið. Þrátt fyrir samkomubann í fyrra tókst dagurinn mjög vel
Plokktrixin
- Finna sér svæði til að plokka á og hvetja fjölskylduna til að taka þátt.
- Stofna viðburð í hverfinu eða tengja sig inn á stofnaðan viðburð.
- Útvega sér ruslapoka, hanska og plokktöng.
- Klæða sig eftir aðstæðum.
- Virða samkomubannið og gæta að tveggja metra reglunni.
- Koma afrakstrinum á stað.
- Senda upplýsingar um staðsetningu og magn á reykjavik.is/abendingar.
- Gæta fyllstu varúðar og brýna fyrir börnum að láta nálar og aðra hættulega hluti vera, en tilkynna til foreldra eða umsjónarmanna svo mögulegt sé að fjarlægja þá.
Gangi öllum vel á Stóra plokkdeginum og farið varlega. #PLOKK2021
Tengill