Auglýst er eftir verkefnum og viðburðum sem ætlað er að stuðli að auknu mannlífi, menningu, félagsauði og lífsgæðum í hverfunum árið 2021. Mikilvægt er að verkefnin höfði til allra aldurshópa og skírskoti til breiðs hóps fólks sem vill sækja sér afþreyingu og upplifun í eigin hverfi.
Sjóðurinn nemur alls kr. 30.000.000 Miðað er við að íbúaráð sem eru níu talsins, fái milljón hvert en afgangurinn deilist til íbúaráða eftir íbúafjölda hverfanna. Styrkirnir skiptast á eftirfarandi hátt á milli íbúaráða borgarinnar:
| Íbúaráð Árbæjar og Norðlingaholts | kr. 2.810.000 |
| Íbúaráð Breiðholts | kr. 4.530.000 |
| Íbúaráð Grafarholts og Úlfarsárdals | kr. 2.230.000 |
| Íbúaráð Grafarvogs | kr. 3.860.000 |
| Íbúaráðs Kjalarness | kr. 1.150.000 |
| Íbúaráð Háaleitis- og Bústaðahverfis | kr. 3.470.000 |
| Íbúaráð Laugardals | kr. 3.820.000 |
| Íbúaráð Miðborgar og Hlíða | kr. 4.430.000 |
| Íbúaráð Vesturbæjar | kr. 3.700.000 |
Umsóknarfrestur er frá 29. mars – 25. apríl 2021. Að öllu jöfnu er miðað við að styrkupphæðir fyrir hvert verkefni, séu á bilinu kr. 50.000 til 500.000.
Hverjir geta sótt um og hvað er styrkt?
Einstaklingar, félagasamtök eða aðrir hópar sem vinna saman að einstöku verkefni geta sótt um styrk í sjóðinn. Markmið sjóðsins er að efla hverfisanda, félagsauð, mannlíf og menningu í hverfunum.
Styrkir geta til dæmis fallið til:
- Viðburða í hverfum borgarinnar sem höfða til allra aldurshópa
- Markaða sem efla líf í hverfinu
- Tónleika, listviðburða eða annað sem eflir hverfisvitund
- Pop - up leikvalla og þrautabrauta í hverfunum
- Hreinsun eða gróðursetningar á svæðum innan hverfisins
- Önnur verkefni sem eru til þess fallin að auka félagsauð og styrkja hverfisvitund
Styrknum er ekki ætlað að koma í stað launa heldur vegna efniskostnaðar, kaupa á listviðburðum, kostnaði við leiðbeinendur, auglýsingakostnað eða veitingar.
Vakin er athygli á því að viðburðir eða verkefni eru ekki styrkt eftir á.
Styrkþegar skulu þegar við á sækja um nauðsynleg leyfi fyrir framkvæmd verkefnis, t.d. notkun á borgarlandi og uppsetningu mannvirkja.
Frekari leiðbeiningar eru veittar hjá starfsmönnum mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu: hverfissjodur@reykjavik.is.