Styrkir til eflingar hverfisanda, mannlífs og menningar

Mannréttindi Mannlíf

""

Auglýst er eftir verkefnum og viðburðum sem ætlað er að stuðli að auknu mannlífi, menningu, félagsauði og lífsgæðum í hverfunum árið 2021. Mikilvægt er að verkefnin höfði til allra aldurshópa og skírskoti til breiðs hóps fólks sem vill sækja sér afþreyingu og upplifun í eigin hverfi.

Sjóðurinn nemur alls kr. 30.000.000 Miðað er við að íbúaráð sem eru níu talsins, fái milljón hvert en afgangurinn deilist til íbúaráða eftir íbúafjölda hverfanna. Styrkirnir skiptast á eftirfarandi hátt á milli íbúaráða borgarinnar:  

Íbúaráð Árbæjar og Norðlingaholts   kr. 2.810.000
Íbúaráð Breiðholts kr. 4.530.000
Íbúaráð Grafarholts og Úlfarsárdals   kr. 2.230.000
Íbúaráð Grafarvogs   kr. 3.860.000
Íbúaráðs Kjalarness         kr. 1.150.000
Íbúaráð Háaleitis- og Bústaðahverfis kr. 3.470.000
Íbúaráð Laugardals             kr. 3.820.000
Íbúaráð Miðborgar og Hlíða kr. 4.430.000
Íbúaráð Vesturbæjar     kr. 3.700.000

Umsóknarfrestur er frá 29. mars – 25. apríl  2021. Að öllu jöfnu er miðað við að styrkupphæðir fyrir hvert verkefni, séu á bilinu kr. 50.000 til 500.000.

Hverjir geta sótt um og hvað er styrkt?

Einstaklingar, félagasamtök eða aðrir hópar sem vinna saman að einstöku verkefni geta sótt um styrk í sjóðinn. Markmið sjóðsins er að efla hverfisanda, félagsauð, mannlíf og menningu í hverfunum.

Styrkir geta til dæmis fallið til:

  • Viðburða í hverfum borgarinnar sem höfða til allra aldurshópa
  • Markaða sem efla líf í hverfinu
  • Tónleika, listviðburða eða annað sem eflir hverfisvitund
  • Pop - up leikvalla og þrautabrauta í hverfunum
  • Hreinsun eða gróðursetningar á svæðum innan hverfisins
  • Önnur verkefni sem eru til þess fallin að auka félagsauð og styrkja hverfisvitund

Styrknum er ekki ætlað að koma í stað launa heldur vegna efniskostnaðar, kaupa á listviðburðum, kostnaði við leiðbeinendur, auglýsingakostnað eða veitingar.

Vakin er athygli á því að viðburðir eða verkefni eru ekki styrkt eftir á.

Styrkþegar skulu þegar við á sækja um nauðsynleg leyfi fyrir framkvæmd verkefnis, t.d. notkun á borgarlandi og uppsetningu mannvirkja.

Frekari leiðbeiningar eru veittar hjá starfsmönnum mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu: hverfissjodur@reykjavik.is.