Auglýst er eftir umsóknum um styrki fyrir myndríka miðlun um sögu Reykjavíkur. Um aukaúthlutun er að ræða og er umsóknarfrestur til 18. október nk.
Rithöfundar, útgefendur og aðrir sem hyggja á myndríka miðlun á árinu 2021 eða í ársbyrjun 2022 um efni sem tengist sögu Reykjavíkur geta sótt um styrkinn. Styrkurinn er í formi inneignar til kaupa á ljósmyndum til birtingar frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur, að hluta eða heild.
Tilgangur styrkveitinganna er að hlúa að varðveislu menningararfleifðar Reykjavíkur og hvetja til miðlunar á sögu hennar. Hópur skipaður þremur sérfræðingum á menningar- og ferðamálasviði fer yfir umsóknir og gerir tillögu til menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar um val á umsækjendum.
Í umsókn um styrk til myndríkrar miðlunar þurfa að koma fram upplýsingar um umsækjanda ásamt lýsingu á fyrirhugaðri útgáfu. Einnig skal fylgja verðáætlun Ljósmyndasafns Reykjavíkur vegna fyrirhugaðra kaupa á ljósmyndum í höfundarétti sem bera birtingagjald skv. gjaldskrá safnsins.
Nánari upplýsingar um styrki fyrir myndríka miðlun um sögu Reykjavíkur