Styrkir fyrir myndríka miðlun um sögu Reykjavíkur

Samgöngur Umhverfi

""

Auglýst er eftir umsóknum um styrki fyrir myndríka miðlun um sögu Reykjavíkur. Um aukaúthlutun er að ræða og er umsóknarfrestur til 18. október nk.

 

Rithöfundar, útgefendur og aðrir sem hyggja á myndríka miðlun á árinu 2021 eða í ársbyrjun 2022 um efni sem tengist sögu Reykjavíkur geta sótt um styrkinn. Styrkurinn er í formi inneignar til kaupa á ljósmyndum til birtingar frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur, að hluta eða heild.

Tilgangur styrkveitinganna er að hlúa að varðveislu menningararfleifðar Reykjavíkur og hvetja til miðlunar á sögu hennar. Hópur skipaður þremur sérfræðingum á menningar- og ferðamálasviði fer yfir umsóknir og gerir tillögu til menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar um val á umsækjendum.

Í umsókn um styrk til myndríkrar miðlunar þurfa að koma fram upplýsingar um umsækjanda ásamt lýsingu á fyrirhugaðri útgáfu. Einnig skal fylgja verðáætlun Ljósmyndasafns Reykjavíkur vegna fyrirhugaðra kaupa á ljósmyndum í höfundarétti sem bera birtingagjald skv. gjaldskrá safnsins.

Nánari upplýsingar um styrki fyrir myndríka miðlun um sögu Reykjavíkur