Opinn fundur borgarstjórnar og öldungaráðs verður haldinn þriðjudaginn 28. september og er yfirskrift fundarins Hvar viljum við búa?
Ávarp flytur auk borgarstjóra Berglind Eyjólfsdóttir, formaður öldungaráðs en á fundinum verður fjallað um sjálfstæða búsetu eldra fólks þar sem litið er á þá valkosti sem eru í boði. Erindi verða flutt um búsetu og lífsgæði eldri borgara m.a. í blandaðri byggð, sambýli og í þorpum eða sjálfbærum vistfélögum. Einnig verður fjallað um hvernig hönnun hefur áhrif og fjarlægð í þjónustu og frístundastarf.
Pallborðsumræður verða í lok fundar þar sem auk þeirra sem eru með erindi situr Berglind Magnúsdóttir, skrifstofustjóri öldrunarmála velferðarsvið Reykjavíkur og áheyrnarfulltrúi sviðsins í öldungaráði
Dagskrá í Tjarnarsal
Kl. 14.00 - Ávarp borgarstjóra Dagur B. Eggertsson
Kl. 14.10 - Formaður öldungaráðs Berglind Eyjólfsdóttir
Kl. 14.20 - Marglaga öldrun - Lífsgæði eldri borgara í blandaðri byggð
Elma Klara Þórðardóttir arkitekt
Kl. 14.35 - Gaman saman?
Árni Guðmundsson aðjúnkt í tómstunda- og félagsmálafræðum, Háskóla Íslands
Kl. 14.50 - Baba Yaga systrahús
Margrét Ágústsdóttir fulltrúi Félags eldri femínista
Kl. 15.05 - Nýjar þarfir, nýjar hugmyndir, ný búsetuúrræði
Runólfur Ágústsson verkefna- og þróunarstjóri, Þorpið vistfélag
Kl. 15.15 Efri árin í sambýli
Margrét S. Pálsdóttir
Kl. 15.25 - Umræður og spurningar úr sal
Kl. 15.55 - Samantekt og fundarlok
Berglind Eyjólfsdóttir formaður öldungaráðs
Fundarstjóri er Alexandra Briem. Á fundinum eru boðnar léttar veitingar og öll eru velkomin.
Beint streymi frá fundinum.