Sex leikskólar verða opnir í sumar

Skóli og frístund

""

Komið til móts við óskir foreldra um meiri sveigjanleika á orlofstíma. 

Sex borgarreknir leikskólar verða opnir í allt sumar, einn í hverju hverfi. Þetta eru leikskólarnir:

  • Bakkaborg í Breiðholti
  • Drafnarsteinn í Vesturbæ
  • Engjaborg í Grafarvogi
  • Langholt í Laugardal/Háaleiti
  • Maríuborg í Árbæ/Grafarholti og
  • Stakkaborg í Miðborg/Hlíðum

Sumaropnun leikskóla er tilraunaverkefni sem fór af stað sumarið 2019 til að koma til móts við óskir foreldra um meiri sveigjanleika á orlofstímanum. Foreldrar sækja um sumardvöl fyrir barn sitt í opnum leikskóla og verður hægt að sækja um frá og með 5. mars. 

Í nýlegri viðhorfskönnun meðal foreldra kom fram að 97% foreldra voru mjög eða frekar ánægðir með að einn leikskóli í hverjum borgarhluta væri opinn yfir sumarið líkt og undanfarin tvö ár.

Í fyrra sóttu þó aðeins 18% foreldra um að taka sumarleyfi á öðrum tíma en var í þeirra leikskóla og er ástæðan líklega sú að foreldrar höfðu gengið á orlofsdaga sína vegna verkfalla fyrr á árinu og kórónuveirufaraldursins. Samtals nýttu foreldrar 187 barna sér sumaropnunina sumarið 2020 eða foreldrar 3,54% leikskólabarna. 

Raunkostnaður við sumaropnunina í fyrra var 44 milljónir.

Frekari upplýsingar um sumaropnun veita leikskólastjórar foreldrum í hverjum skóla.