Komið til móts við óskir foreldra um meiri sveigjanleika á orlofstíma.
Sex borgarreknir leikskólar verða opnir í allt sumar, einn í hverju hverfi. Þetta eru leikskólarnir:
- Bakkaborg í Breiðholti
- Drafnarsteinn í Vesturbæ
- Engjaborg í Grafarvogi
- Langholt í Laugardal/Háaleiti
- Maríuborg í Árbæ/Grafarholti og
- Stakkaborg í Miðborg/Hlíðum
Sumaropnun leikskóla er tilraunaverkefni sem fór af stað sumarið 2019 til að koma til móts við óskir foreldra um meiri sveigjanleika á orlofstímanum. Foreldrar sækja um sumardvöl fyrir barn sitt í opnum leikskóla og verður hægt að sækja um frá og með 5. mars.
Í nýlegri viðhorfskönnun meðal foreldra kom fram að 97% foreldra voru mjög eða frekar ánægðir með að einn leikskóli í hverjum borgarhluta væri opinn yfir sumarið líkt og undanfarin tvö ár.
Í fyrra sóttu þó aðeins 18% foreldra um að taka sumarleyfi á öðrum tíma en var í þeirra leikskóla og er ástæðan líklega sú að foreldrar höfðu gengið á orlofsdaga sína vegna verkfalla fyrr á árinu og kórónuveirufaraldursins. Samtals nýttu foreldrar 187 barna sér sumaropnunina sumarið 2020 eða foreldrar 3,54% leikskólabarna.
Raunkostnaður við sumaropnunina í fyrra var 44 milljónir.
Frekari upplýsingar um sumaropnun veita leikskólastjórar foreldrum í hverjum skóla.