Pasta innkallað vegna myglu

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Aðföng hefur, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, stöðvað sölu og innkallað frá neytendum tvær tegundir af pasta; La Pasta di Alessandra Tortellini con ripieno di carne og La Pasta di Alessandra Tortellini con ripieno di formaggio.

Ástæða innköllunar er að mygla hefur fundist í framleiðslulotu en mygla gerir matvælin óhæf til neyslu.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

  • Framleiðsluland: Ítalía
  • Vörumerki:   La Pasta di Alessandra
  • Vöruheiti:   Tortellini con ripieno di carne          
  • Geymsluþol: Best fyrir  Dagsetning: 16-10-2021
  • Strikamerki:   8001195333005
  • Nettómagn: 1000 g
  • Geymsluskilyrði: Á ekki við
  • Framleiðandi: Nuovo Pastificio Italiano S.r.l.
  • Vörumerki: La Pasta di Alessandra
  • Vöruheiti: Tortellini con ripieno di formaggio   
  • Geymsluþol: Best fyrir  Dagsetning: 16-10-2021
  • Strikamerki:   8001195333029
  • Nettómagn: 1000 g
  • Geymsluskilyrði: Á ekki við
  • Framleiðandi: Nuovo Pastificio Italiano S.r.l.
  • Framleiðsluland: Ítalía

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:

Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík.

Sala og dreifing vörunnar er í verslunum Bónus um land allt.

Viðskiptavinum sem keypt hafa vörurnar er ráðlagt að neyta þeirra ekki og farga en einnig er hægt að skila þeim í verslunina þar sem þær voru keyptar gegn fullri endurgreiðslu.

Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600 eða í gegnum netfangið gaedastjori[hja]adfong.is.