Opnað fyrir umsóknir um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa

Velferð

""

Umsóknarfrestur vegna styrkja til náms, verkfæra- og tækjakaupa fyrir fatlað fólk er til 18. október. Úthlutun fer fram einu sinni á ári samkvæmt reglum Reykjavíkurborgar og taka úthlutanir mið af fjölda umsókna hverju sinni. 

Um er að ræða eftirtalda styrki: 

  • Námsstyrki til greiðslu útlagðs kostnaðar vegna námskeiðs- og skólagjalda og námsgagna, að tölvu undanskilinni. Námsstyrki má veita árlega ef sýnt er fram á gildi námsins fyrir viðkomandi einstakling og fyrir liggur staðfesting um góða námsástundun og áætluð námslok
  • Styrki til verkfæra- og tækjakaupa eða aðra fyrirgreiðslu vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi að endurhæfingu lokinni.

Samþykktir styrkir til umsækjanda í hverri úthlutun geta verið hámark 60.000 krónur vegna náms og 60.000 krónur vegna verkfæra- og tækjakaupa.

Smelltu hér til að sækja um styrk og sjá allar frekari upplýsingar