Opið samráð um lýðræðisstefnu Reykjavíkurborgar

Stjórnsýsla Mannréttindi

""

Unnið hefur verið að mótun lýðræðisstefnu Reykjavíkurborgar síðan haustið 2019 og nú liggja fyrir drög að stefnunni ásamt aðgerðaráætlun og mælanlegum markmiðum.  Gildistími stefnunnar er frá 2021-2030. Óskað er eftir umsögnum frá almenningi og frestur til þess að skila umsögnum er til 23. ágúst 2021

Stefnudrögin voru unnin í opnu samráðsferli sem aðgengilegt var öllum. COVID-19 setti vissulega svip sinn á samráðsferlið en með rafrænum lausnum í bland við aðrar aðferðir tókst að bjóða upp á víðtækt samtal um lýðræði og þátttöku í Reykjavík. 

Markmiðið með stefnunni er að auka þátttöku og áhrif íbúa.  Lýðræðisstefnan á að vera leiðarljós bæði fyrir íbúa borgarinnar og stjórnkerfið um það með hvaða hætti íbúar koma að ákvarðanatöku í verkefnum Reykjavíkurborgar.

Drög að lýðræðisstefnu, mælanleg markmið og aðgerðaráætlun

Sendu inn umsögn í gegnum Betri Reykjavík

Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið lydraedi@reykjavik.is

Nánar um lýðræðisstefnuna