Fyrirtækið ÍSAM, hefur að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Finn Crisp Sesame & Fibre Round Crispbread hrökkbrauð.
Ástæða þessa er að varnarefnið ethylene oxíð greindist í vörunni en það er ekki leyfilegt til notkunar við framleiðslu matvæla í Evrópu. Neysla á matvælum sem innihalda ethylene oxíð getur til langs tíma verið heilsuspillandi.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
- Vörumerki: Finn Crisp
- Vöruheiti: Sesame & Fibre Round Crispbread
- Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: Allar best fyrir dagsetningar frá 24.1.2021 til og með 3.9.2021
- Strikamerki: 6410500097099
- Nettómagn: 250 g
- Geymsluskilyrði: Á ekki við
- Framleiðandi: Lantmånnen Cerealia
- Framleiðsluland: Finnland
- Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: ÍSAM, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík.
- Dreifing: Verslanir um land allt.
Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.
Nánari upplýsingar um innköllunina veitir Svandís, gæðastjóri ÍSAM, á netfanginu svandis[hja]isam.is eða í síma 522 2700.