Óleyfilegt efni í hrökkbrauði

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Fyrirtækið ÍSAM, hefur að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Finn Crisp Sesame & Fibre Round Crispbread hrökkbrauð.

Ástæða þessa er að varnarefnið ethylene oxíð greindist í vörunni en það er ekki leyfilegt til notkunar við framleiðslu matvæla í Evrópu. Neysla á matvælum sem innihalda ethylene oxíð getur til langs tíma verið heilsuspillandi.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki: Finn Crisp
  • Vöruheiti: Sesame & Fibre Round Crispbread    
  • Geymsluþol: Best fyrir  Dagsetning: Allar best fyrir dagsetningar frá 24.1.2021 til og með 3.9.2021
  • Strikamerki: 6410500097099
  • Nettómagn: 250 g
  • Geymsluskilyrði: Á ekki við
  • Framleiðandi: Lantmånnen Cerealia
  • Framleiðsluland: Finnland
  • Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: ÍSAM, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík.
  • Dreifing: Verslanir um land allt.

Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.

Nánari upplýsingar um innköllunina veitir Svandís, gæðastjóri ÍSAM, á netfanginu svandis[hja]isam.is eða í síma 522 2700.