Mun nú heita innri endurskoðun og ráðgjöf Reykjavíkurborgar eftir að þrjár eftirlitseiningar voru sameinaðar undir stjórn innri endurskoðanda.
Borgarráð samþykkti í júní á síðasta ári að þrjár eftirlitseiningar yrðu sameinaðar undir stjórn og á ábyrgð innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar. Gert var ráð fyrir að starfsemin fengi nýtt heiti að sameiningu lokinni.
Þær einingar sem voru sameinaðar voru persónuvernd borgarinnar, umboðsmaður borgarbúa og innri endurskoðun. Starfsfólk hinna sameinuðu eininga hefur nú starfað saman í nokkra mánuði undir stjórn innri endurskoðanda. Rætt var við starfsfólk umræddra eininga og ytri aðila og kallað eftir nafnatillögum. Allmargar tillögur komu fram en sú sem varð hlutskörpust var Innri endurskoðun og ráðgjöf Reykjavíkurborgar. Tillagan hafði áður verið kynnt fyrir endurskoðunarnefnd Reykjavíkurborgar sem bókaði við það tilefni að heitið hafi þann kost að vera lýsandi fyrir hlutverk eftirlitseiningarinnar.
Borgarráð hefur nú samþykkt nafnabreytinguna og er heiti starfseiningarinnar því Innri endurskoðun og ráðgjöf Reykjavíkurborgar.
Hlutverk innri endurskoðunar og ráðgjafar Reykjavíkurborgar er að fara með fjármála- og stjórnsýslueftirlit hjá Reykjavíkurborg í umboði borgarráðs. Í því felst að með störfum sínum leggur innri endurskoðun mat á og bætir virkni áhættustýringar, eftirlitsaðferða og stjórnarhátta hjá stofnunum og félögum í meirihlutaeigu Reykjavíkurborgar.
Umboðsmaður borgarbúa og persónuvernd
Verkefni umboðsmanns borgarbúa er að veita borgarbúum ráðgjöf, greiða götu þeirra, sætta sjónarmið og leiðbeina þeim í samskiptum sínum við borgina, m.a. um leiðir þeirra til að leita réttar síns telji þeir að á sér hafi verið brotið.
Persónuverndarfulltrúi veitir stjórnendum Reykjavíkurborgar ráðgjöf um persónuvernd, upplýsir þá, fylgist með og sér um önnur þau verkefni sem greinir í reglugerð ESB 2016/679 frá 27. apríl 2016, og lögum nr. 90/2018.
Persónuverndarfulltrúi þarf að koma, með viðeigandi hætti og tímanlega, að öllum málum borgarinnar sem varða ákvarðanatöku um vinnslu persónuupplýsinga.
Hjá Innri endurskoðun og ráðgjöf er jafnframt tekið á móti upplýsingum frá starfsmönnum, viðsemjendum Reykjavíkurborgar og öðrum um réttarbrot, vanrækslu eða mistök eða óeðlileg afskipti kjörinna fulltrúa af málum í stjórnsýslu og/eða þjónustu Reykjavíkurborgar.
Innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar er Hallur Símonarson