Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur innkallað Hjónabakka, nýmeti, þorrabakki frá Múlakaffi ehf. vegna ofnæmisvalda í vörunni.
Ástæða innköllunar:
Ofnæmis- og óþolsvaldar, sinnep og egg, koma ekki fram í innihaldslýsingu.
Hver er hættan?
Neytendum sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir eggjum og/eða sinnepi getur stafað hætta af vörunni.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Múlakaffi
Vöruheiti: Hjónabakki, nýmeti, þorramatur
Geymsluþol: Síðasti notkunardagur Dagsetning: 17.01.2021 og 23.1.2021
Strikamerki: 5694310450157
Nettómagn: 800 g
Geymsluskilyrði: Kælivara
Framleiðandi: Múlakaffi
Framleiðsluland: Ísland
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:
Múlakaffi ehf., Hallarmúla 2, 108 Reykjavík.
Dreifing:
Verslanir Krónunnar um land allt og Melabúðin.
Leiðbeiningar til neytenda:
Viðskiptavinir, sem hafa ofnæmi fyrir eggjum og/eða sinnepi eru beðnir um að neyta vörunnar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Tekið skal fram að neytendum sem ekki hafa ofnæmi fyrir sinnepi eða eggjum er óhætt að neyta vörunnar.