Innköllun á Hjónabakka frá Múlakaffi ehf.

Heilbrigðiseftirlit

""

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur innkallað Hjónabakka, nýmeti, þorrabakki frá Múlakaffi ehf. vegna ofnæmisvalda í vörunni.

Ástæða innköllunar:

Ofnæmis- og óþolsvaldar, sinnep og egg, koma ekki fram í innihaldslýsingu.

Hver er hættan?

Neytendum sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir eggjum og/eða sinnepi getur stafað hætta af vörunni.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Múlakaffi

Vöruheiti: Hjónabakki, nýmeti, þorramatur      

Geymsluþol: Síðasti notkunardagur  Dagsetning: 17.01.2021 og 23.1.2021

Strikamerki: 5694310450157

Nettómagn: 800 g

Geymsluskilyrði: Kælivara

Framleiðandi: Múlakaffi

Framleiðsluland: Ísland

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:

Múlakaffi ehf., Hallarmúla 2, 108 Reykjavík.

Dreifing:

Verslanir Krónunnar um land allt og Melabúðin.

Leiðbeiningar til neytenda:

Viðskiptavinir, sem  hafa ofnæmi fyrir eggjum og/eða sinnepi eru beðnir um að neyta vörunnar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Tekið skal fram að neytendum sem ekki hafa ofnæmi fyrir sinnepi eða eggjum er óhætt að neyta vörunnar.