Istanbul Market, hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Grape Leaves, vínberjalauf.
Varnarefnaleifar eru yfir leyfilegum mörkum í vörunni, sem er ástæða innköllunar.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
- Vörumerki: Durra
- Vöruheiti: Grape Leaves
- Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 14.04.2022
- Lotunúmer: 6741120
- Strikamerki: 6251136008796
- Nettómagn: 300 g
- Upprunaland: Egypta
- Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Istanbul Market, Grensásvegi 10.
Varan er einungis seld í Istanbul Market, Grensásvegi 10.
Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila henni gegn endurgreiðslu í verslun Istanbul Market að Grensásvegi 10
Nánari upplýsingar veitir Istanbul Market í síma 6167201 eða í gegnum netfangið istanbulmarket.is@gmail.com.