Hverfisskipulag fyrir öll hverfi Breiðholts var samþykkt í borgarráði í dag eftir formlegt og lögbundið kynningar- og samþykktarferli.
Vistvæn og heilsueflandi borgarhverfi er meginmarkmið hverfisskipulags sem tekur mið af óskum íbúa. Hverfisskipulag er deiliskipulag fyrir gróin hverfi sem á að stuðla að jákvæðri þróun Reykjavíkur.
Hvert skipulag tekur sinn tíma og því æskilegt að búa yfir verkfærum til að þróa hverfi í takt við breyttan tíðaranda og gefa húseigendum tækifæri til breytinga á þægilegri hátt en áður í samræmi við óskir og þarfir þeirra. Það er nauðsynlegt að rjúfa kyrrstöðu sem víða hefur ríkt og gera íbúum auðveldara að ráðast í breytingar.
Efla þjónustukjarna og styrkja byggð
Pawel Bartoszek formaður skipulags- og samgönguráðs segir að með hverfiskipulaginu í Breiðholti hafi gefist tækifæri til að hugsa um framtíð hvers hverfis í heild sinni.
„Samráðsvinna hefur verið einstök og staðið yfir í hátt í sex ár. Það voru fjölmargar hugmyndir kynntar og sumar settar til hliðar fljótt en aðrar fengið að lifa,“ segir Pawel og að fólk hafi almennt verið jákvætt í garð hugmynda um að efla þjónustukjarnana og styrkja byggðina nálægt þeim. „Við vinnum þá áfram með þær hugmyndir. Svo er ég mjög spenntur að sjá hvernig Austurbergið eigi eftir að líta út eftir nokkur ár.“
Aukið gagnsæi og jafnræði
Hverfisskipulag fyrir Breiðholt er afrakstur víðtæks og metnaðarfulls samráðsferlis sem stóð yfir frá árinu 2016 til dagsins í dag. Komið er til móts við ákall íbúa um öflugri hverfiskjarna með þróun Arnarbakka og Völvufells og fleiri þróunarreita sem unnir hafa verið samhliða gerð hverfisskipulagsins.
Vetrargarðurinn fær til dæmis sinn sess í skipulagi Seljahverfis eins og fyrirhuguð dansmiðstöð í Efra-Breiðholti.
Reykjavíkurborg vinnur að hverfisskipulagi fyrir öll gróin hverfi m.a. til auka gagnsæi og jafnræði í kringum skipulagsheimildir. Hverfisskipulagið skapar skýra umgjörð um breytingar og viðbyggingar við núverandi húsnæði og einfaldar íbúum að standa í framkvæmdum.
Hverfin í Breiðholti
Neðra Breiðholt: Hverfisskipulag miðar að því að gera Neðra-Breiðholt sjálfbærara og vistvænna. Huga á að gæðum byggðar og styrkja byggðamynstur og staðaranda. Nærþjónusta er í Mjódd og hverfiskjarna í Arnarbakka sem á að efla.
Seljahverfi: Gæði byggðarinnar í Seljahverfi munu aukast. Byggja á upp hverfiskjarna með nærþjónustu við Rangársel og bæta íþróttaaðstöðu í Vetrargarði austast í hverfinu.
Efra Breiðholt: Efla á hverfiskjarna og nærþjónustu og styrkja miðsvæðið við Austurberg og Gerðuberg sem er hjartað í hverfinu. Stefnt er að sjálfbærara og vistvænna hverfi og fjölgun á stærri fjölskylduíbúðum.
Margt á döfinni
Útfærsla hverfisskipulagsins fyrir Neðra-Breiðholt, Efra-Breiðholt og Seljahverfi byggir á vandaðri greiningu og góðu samráði sem hefur skilað nýjum og spennandi hugmyndum og verkefnum sem eru að komast á framkvæmdastig. Nefna má að í Völvufelli mun nýr leikskóli líta dagsins ljós á grunni hverfisskipulagsins.
Annað dæmi er að í hverfiskjarna í Bökkunum verða græn svæði betur skilgreind með reiti fyrir matjurtaræktun auk þess sem gróðurhúsi til almennra nota verður komið fyrir inn á svæðinu. Íbúðir við Arnarbakka verða alls 90 og skiptast jafnt á milli einstaklings og þriggja herbergja íbúða.
Tenglar: