Fjárhags- og fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar

Fjármál

Tjörnin og Ráðhús Reykjavíkur

Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar hefur verið lögð fram ásamt fimm ára áætlun til 2026. 

Vöxtur úr Covid-kreppu og jafnvægi í útgjöldum

Borgin hélt áfram kraftmiklum vexti á árinu, íbúum fjölgaði um tæplega 2000, og fjárfestingar í innviðum hafa aldrei verið meiri. Á sama tíma eru fyrirtæki borgarinnar að snúa vörn í sókn og sýna góða rekstrarafkomu. Loftslagsmálin, stærsta verkefni samtímans, endurspeglast í öllum aðgerðum og áætlunum borgarinnar. Allt er þetta hluti af áætlun um efnahagslega endurreisn, Græna planið, sem byggir á hugmyndafræði sjálfbærni.

Efnahagshorfur

Síðustu 20 mánuðir eiga sér enga hliðstæðu í íslensku efnahagslífi. Kórónaveirufaraldurinn hefur haft áhrif á starfsemi fyrirtækja í nær öllum atvinnugreinum sem leiddi til fjölda uppsagna auk þess að stór partur af vinnuafli fór á hlutabótaleiðina. Aukið atvinnuleysi hefur að mestu verið vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins á þjónustugreinar og mun bati í atvinnustigi að mestu fylgja auknum fjölda ferðamanna næstu árin. Þrátt fyrir að enn sé óvissa um framgang faraldursins eru vonir bundnar við að hann sé í rénun.

Sé litið til Reykjavíkur þá hefur almennt atvinnuleysi aukist mikið undanfarin 2 ár en hefur þó minnkað jafnt og þétt frá því í febrúar 2021. Meðalatvinnuleysi var 9% árið 2020 en mældist 5,8% í september 2021. Þrátt fyrir spá um að hagvöxtur glæðist á þessu og næstu árum verður atvinnuleysi þó áfram nokkuð hátt sögulega séð.

Auknar skuldbindingar á sveitarfélög hafa áhrif

Árin 2020 til 2022 er gert ráð fyrir neikvæðri rekstrarniðurstöðu A-hluta. Má það rekja til efnahagskreppunnar og magnaukninga einkum í velferðarþjónustu vegna aukinna skuldbindinga sem lagðar eru á sveitarfélög með lagasetningu og reglugerðum án þess að tekjustofnar séu styrktir.

Betri fjármögnun grunnskóla með nýju grunnskólalíkani um fjármál og stórátak í viðhaldi leikskóla, grunnskóla og frístundahúsnæðis sem telur 136 byggingar verður svo eitt af stærstu verkefnunum sem fer af stað á nýju ári. Alls á að verja á bilinu 25-30 milljörðum til þess á næstu 5-7 árum. Þá er verið er að innleiða verkefnið Betri borg fyrir börn, samstarfsverkefni skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs, uppbygging búsetuúrræða fyrir fatlaða heldur áfram og mikil áhersla er lögð á þjónustu við viðkvæma hópa í kjölfar Covid.

Frá og með árinu 2022 er gert ráð fyrir batnandi rekstrarniðurstöðu sem skýrist m.a. af aðgerðaráætlun til næstu fimm ára sem á að hafa jákvæð áhrif á bæði tekjur og útgjöld borgarinnar.

Á áætlunartímabilinu hækka skuldir og skuldbindingar vegna sóknaráætlunar í fjárfestingum og nauðsynlegrar lántöku en skv. fjármálastefnunni er stefnt að því að greiða niður skuldir frá og með árinu 2026.

Borgin er að sækja fram

„Reykjavík mun vaxa út úr þeim vanda sem Covid skilur eftir sig," segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. „Niðurstöður eru í samræmi við Græna planið sem lagt var fram í fyrra og er sýn borgarinnar til skamms og lengri tíma. Grænum fjárfestingum hefur verið flýtt, við bætum sérstaklega við viðhaldsfé í skóla- og frístundahúsæði. Verður 25-30 milljörðum varið til þeirra næstu 5-7 ár. Það dugir til að vinna upp það viðhald sem sparað var á árunum eftir hrun. Grunnskólinn verður einnig betur fjármagnaður á grunni nýs úthlutunarlíkans og velferðarsvið fær fjármuni til að mæta áskorunum og aukinni þjónustu. Borgin er að sækja fram og næsti áratugur verður áratugur Reykjavíkur.“

Aðgerðaráætlun árin 2022-2026

Með framlagningu fjárhags- og fimm ára áætlunar er lögð fram eftirfarandi aðgerðaráætlun til að tryggja að markmiðum fjármálastefnu verði náð:

  1. Ná fram 1% hagræðingu á ári á launakostnað í gegnum aðhaldsaðgerðir og stafræna umbreytingu á tímabilinu 2022-2025.
  2. Einungis verði verðbættar samningsbundnar skuldbindingar og hagræðingu náð í rekstri með miðlægum innkaupum og aðhaldsaðgerðum á tímabilinu 2022-2025
  3. Haldið verði áfram með vinnumarkaðsaðgerðir fram eftir árinu 2022 með það að markmiði að skapa störf fyrir einstaklinga sem eru á fjárhagsaðstoð eða atvinnuleysisbótum.
  4. Stuðlað verði að bættri nýtingu húsnæðis með aukinni samnýtingu.
  5. Tryggja óhindrað framboð íbúða og húsnæðis með skipulegri þróun nýrra hverfa sem laðar að íbúa og eflir tekjustofna.
  6. Leitað verði samninga við ríkið um leiðréttingu á framlögum vegna lögbundinna verkefna, einkum vegna þjónustu við fatlað fólk.
  7. Fjármagnsskipan fyrirtækja borgarinnar verði endurskoðuð.
  8. Farið verði í aðgerðir til að bæta skattskil m.a. í samstarfi við ríkið.

Rekstur samstæðu sterkur þrátt fyrir samdrátt í efnahagslífinu

Grunnrekstur samstæðu (EBITDA) er sterkur þrátt fyrir samdrátt í efnahagslífinu. Góðan afgang má einkum rekja til Orkuveitu Reykjavíkur og Félagsbústaða hf. vegna matsbreytinga fjárfestingaeigna félagsins.

Árin 2023-2026 er gert ráð fyrir batnandi afkomu samstæðu.

Frekari upplýsingar er að finna í fréttatilkynningu til Kauphallar og á vefsíðu fjárhagsáætlunar 2022.