Eru íþróttir leikvangur karlmennskunnar er yfirskrift málstofu um jafnrétti í íþróttum sem haldin verður á alþjóðlegum degi mannréttinda, föstudaginn 10. desember n.k. Um er að ræða opinn fund mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur kl. 9:00-10:30.
Í nýlegri jafnréttisúttekt Reykjavíkurborgar á öllum níu hverfisíþróttafélögunum kemur m.a. fram að 66% iðkenda eru karlkyns og 34% iðkenda kvenkyns. Einnig kemur fram að þátttaka innflytjenda endurspeglar ekki fjölda þeirra í borginni. Jafnt aðgengi að íþróttaiðkun þvert á hópa er réttlætis- og lýðheilsumál og mikilvægt að leiðrétta hlut þeirra hópa sem hallar á.
Dagskrá:
- 09:00 - Setning - Dóra Björt Guðjónsdóttir, formaður mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs Reykjavíkurborgar
- 09:05 - Jafnréttisúttekt hverfisíþróttafélaga - Sigríður Finnbogadóttir verkefnastjóri í kynjaðri fjárhags- og starfsáætlun hjá Reykjavíkurborg, mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu
- 09:15 - Jafnréttisúttekt á Íþróttafélagi Reykjavíkur (ÍR) - Ísleifur Gissurarson, íþróttastjóri Íþróttafélags Reykjavíkur
- 09:25 - Hinsegin og íþróttir - Svandís Anna Sigurðardóttir sérfræðingur í hinsegin- og jafnréttismálum Reykjavíkurborgar, mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar
- 09:35 - Aðgengi fólks af erlendum uppruna að íþróttum í Breiðholti - Jasmina Vajzovic Crnac, verkefnastjóri hverfisverkefna í Breiðholti
- 09:45 - Skýrsla um kynferðislega áreitni og ofbeldi innan knattspyrnuhreyfingarinnar - Tillögur starfshóps varðandi vinnulag, viðhorf og menningu. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra Jafnréttisskóla Reykjavíkur og fulltrúi í framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands
- 09:55 - Umræður og fyrirspurnir
Fundarstjóri er Pawel Bartoszek. Léttar veitingar í boði og öll velkomin!