Dreymir þig um að vera með bás eða matarvagn í bænum?

Umhverfi Mannlíf

""

Athygli er vakin á því að opið er fyrir umsóknir um ný leyfi fyrir götu- og torgsölu í Reykjavík en nýtt úthlutunarár hefst þann 15. maí næstkomandi.

Götusala er leyfisskyld og tekur til hvers kyns sölustarfsemi sem fer fram á almannafæri utanhúss svo sem á torgum, gangstéttum og í almenningsgörðum. Minniháttar góðgerðarsölur, líkt og tombólur barna og ungmenna, eru ekki leyfisskyldar. Öll matsala er leyfisskyld hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.

Minnt er á að fyrirkomulag á úthlutun leyfa breyttist í fyrra og ræðst ekki lengur eingöngu af því hvenær sótt er um.

Úthlutun leyfa byggir nú á kröfum um:

  • Fjölbreytt framboð á vöru og þjónustu.
  • Að útlit söluaðstöðu falli vel að nærumhverfi.
  • Að góð reynsla sé af sambærilegri starfsemi umsækjanda.

Áhugasamir eru hvattir til að undirbúa umsóknir sínar vel.

Hægt er að skoða þær staðsetningar sem í boði eru í Borgarvefsjá en græni liturinn sýnir laus stæði og rauði stæðin sem þegar er búið að taka. Opnað var fyrir umsóknir 15. febrúar síðastliðinn.

Tenglar:

Almennar upplýsingar um götu- og torgsölu 

Umsóknarvefur – Mínar síður á Rafrænni Reykjavík  

Einnig má senda póst á torgsala@reykjavik.is fyrir nánari upplýsingar.